Fréttir

true

Sögurölt í Ósdal í kvöld

Söfnin í Dölum og á Ströndum hafa undanfarin ár staðið saman að svokölluðum söguröltum yfir sumartímann. Eitt slíkt verður í kvöld miðvikudaginn 31. júlí kl. 19. Farið verður frá þjóðveginum eftir vegslóða fram með Ósá (rétt norðan Hólmavíkur) að Svartafljóti. Leiðin er því sem næst á jafnsléttu 2,5 km, fram og til baka. Sögumaður er…Lesa meira

true

Góð þátttaka var í Pósthlaupinu

Pósthlaupið fór fram í þriðja sinn í Dölunum laugardaginn 27. júlí og að sögn skipuleggjenda  hjá Íslandspósti var metþátttaka að þessu sinni. Pósthlaupið er 50 km utanvegahlaup frá Hrútafirði yfir í Búðardal, það er gömul landpóstaleið með um 600 metra hækkun. Í boði er einnig að hlaupa hálfa leið, um 26 km eða síðasta spölinn…Lesa meira

true

Úr sarpi Skessuhorns – Var bóndi af lífi og sál

Í Jólablaði Skessuhorns árið 2008 birtist ítarlegt viðtal við Vigfús Pétursson bónda í Hægindi í Reykholtsdal. Hann var þá búinn að stunda búskap í sex áratugi og átti enn nokkur ár eftir við það. Fyrir nokkrum árum fékk hann systurson sinn og fjölskyldu hans til að taka við búinu, byggði sér lítið hús á bæjarhlaðinu.…Lesa meira

true

Blessað sumarveðrið

Með skilum djúprar lægðar hvessir í nótt vestanlands samkvæmt tilkynningu veðurfræðings á Veðurstofu. Reiknað er með hviðum allt að 30-35 m/s á Kjalarnesi, undir Hafnarfjalli og á norðanverðu Snæfellsnesi frá því í nótt og á morgun þar til síðdegis. Mögulega gengur veðrið ekki niður fyrr en annað kvöld, en ferðalöngum er ráðlagt að fylgjast með…Lesa meira

true

Dio Tríó gefur út sína fyrstu plötu

Fyrsta plata Dio Tríó kemur út í dag þriðjudaginn 30. júlí og kallast hún Vesturgata eftir samnefndri götu á Akranesi þar sem rætur þess liggja. Í tríóinu eru í raun fjórir meðlimir, þeir Hlynur Ben (söngur, kassagítar og hljóðgervlar), Erlingur Viðarsson (rafgítar, básúna og söngur), Hjörtur „Dötti“ Rúnarsson (bassi, klukkuspil og söngur) og Ásmundur Haraldsson (trommur og söngur). Einnig…Lesa meira

true

Unglingalandsmót UMFÍ – góð þátttaka

Eins og fram hefur komið verður Unglingalandsmót UMFÍ haldið í Borgarnesi um komandi helgi og er skráningu lokið. Þátttakan er góð enda telst mótið vera ein fjölmennasta samkoma landsins og hefur átt sér stað um Verslunarmannahelgina allar götur síðan árið 1992. Unnið er hörðum höndum að undirbúningi og máttarvöldin hafa gengið í lið með ungmennafélagsfólki…Lesa meira

true

Hærra brautskráningarhlutfall úr framhaldsskólum

Rúm 64% nýnema á framhaldsskólastigi árið 2018 höfðu útskrifast árið 2022. Brautskráningarhlutfallið, þ.e. hlutfall nýnema sem hefur útskrifast, hefur ekki mælst hærra í tölum Hagstofunnar sem ná aftur til nýnema ársins 1995. Brotthvarf úr námi hefur verið nálægt 20% síðustu þrjú ár en 20,3% nýnema haustið 2018 höfðu hætt námi fjórum árum síðar. Rúmlega 15%…Lesa meira

true

Fjölbýli á landsbyggðinni hækkaði mest í verði

Ný vísitala íbúðaverðs mældist 106,4 stig í júní og hækkaði um 1,4% á milli mánaða, sem er sama hækkun og var í maí þegar vísitalan hækkaði einnig um 1,4% milli mánaða. Hækkunin í júní var mest í flokki fjölbýlishúsa á landsbyggðinni. Á síðustu tólf mánuðum hefur íbúðaverð hækkað um 9,1%, sem er rúmum þremur prósentustigum…Lesa meira

true

Breytingar á sorphirðu í Eyja- og Miklaholtshreppi

Um mánaðamótin næstu tekur nýr þjónustuaðili við sorphirðu í Eyja- og Miklaholtshreppi, en samið hefur verið við Íslenska gámafélagið um þjónustuna. Á sama tíma verða breytingar á sorphirðukerfi og flokkun sorps, sbr. innleiðingu hringrásarhagkerfisins. „Þá verður hætt að sækja lífrænt sorp til íbúa á sama tíma en íbúum verða útvegaðar jarðgerðartunnur og bætt verður við…Lesa meira

true

Skessuhorn er í fríi

Starfsfólk Skessuhorns er nú í tveggja vikna sumarleyfi og er skrifstofa fyrirtækisins lokuð. Það koma því EKKI út blöð miðvikudagana 31. júlí og 7. ágúst. Starfsfólk kemur úr sumarleyfi miðvikudaginn 7. ágúst og undirbýr blað sem gefið verður út 14. ágúst. Fréttaþjónusta er á skessuhorn.is þessa frídaga og skal senda tilkynningar á netfangið skessuhorn@skessuhorn.isLesa meira