Fréttir

true

Skráningu á Unglingalandsmót UMFÍ lýkur á morgun

Unglingalandsmót Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) hefst í Borgarnesi kl. 15:00 næstkomandi fimmtudag og verður vegleg dagskrá í boði allt til miðnættis á sunnudagskvöld. Undirbúningur er í fullum gangi og að honum koma auk mótshaldara bæði einstaklingar og félagasamtök í héraði. Þátttökugjald er 9.400 kr. og innifalið í því er þátttaka í öllum keppnisgreinum, viðburðum og afþreyingu mótsins.…Lesa meira

true

Frækin hundasveit æfir í Einkunnum

Sunnudaginn 28. júli verður Björgunarhundasveit Íslands með æfingu í Einkunnum, útivistarsvæði Borgnesinga fyrir ofan hesthúsahverfið í bænum. Æfingin byrjar kl 10:00 og stendur til um 13:00. Þetta kemur fram í Facebookfærslu Þórhildar Maríu Kristinsdóttur svæðislandvarðar á Vesturlandi. Hún tekur fram að fólki sé velkomið að koma og fylgjast með og kynna sér hvernig leit með…Lesa meira

true

Verðhækkanir mestar í verslunum Samkaupa

Samkvæmt nýjustu mælingum verðlagseftirlits ASÍ hefur verðlag á matvöru nú hækkað hratt, eða um 0,65% milli mánaða. Þetta gerir 9,2% á ársgrundvelli. Hækkanirnar eru mestar í þremur verslunareiningum Samkaupa; Kjörbúðinni, Nettó og Krambúðinni. Skiptir þetta Vestlendinga miklu máli því Nettó er rekið í Borgarnesi, Krambúðin á Akranesi og í Búðardal og Kjörbúðin í Grundarfirði. Á…Lesa meira

true

Bríet var á ferð um Vesturland

Söngkonan Bríet hélt tónleika á Vesturlandi í vikunni sem leið. Byrjaði ferð sína á Akranesi á miðvikudaginn en hélt síðan vestur á Snæfellsnes. Í Samkomuhúsinu í Grundarfirði var hún með tónleika á fimmtudaginn. Þar steig hún á svið ásamt Magnúsi Jóhanni Ragnarssyni hljómborðsleikara og Bergi Einari Dagbjartssyni trommuleikara. Söngkonan lék á alls oddi og var…Lesa meira

true

Skógarstrandarvegur ekinn í sumarblíðunni

Skessuhorni barst ábending þess efni að vegurinn á milli Dala og Stykkishólms, Skógarstrandarvegur, væri orðinn vel akfær, ný heflaður og fínn. Blaðamaður sem ekur dags daglega um á þokklegum Kia Sportage, vildi staðreyna þessar upplýsingar. Nýja brúin yfir Skraumu og nýtt bílastæði við ánna hefur greinilega mikið aðdráttarafl, því þar voru fjölmargir bílar en frábært…Lesa meira

true

Klassart með tónleika í Hallgrímskirkju á sunnudaginn

Á sumartónleikum í Hallgrímskirkju í Saurbæ sunnudaginn 28. júlí kl. 16.00 verður það systkinasveitin Klassart sem kemur fram. Flutt verður fjölbreytt efnisskrá, m.a. lög við kvæði Hallgríms Péturssonar, en þau hafa lagt sig sérstaklega eftir að flytja kveðskap Hallgríms. Það eru Friða Dís, Pálmar og Smári Guðmundarbörn sem skipa Klassart. Þau eru uppalin á Suðurnesjum…Lesa meira

true

Skátafélagið Örninn fór á landsmót

Landsmót skáta fór fram dagana 12.-19. júlí og segja má að krakkarnir hafi fengið allskonar veður á þessu móti. Landsmót skáta hafði ekki verið haldið síðan 2016 þar sem ekki var hægt að halda mót árið 2020 vegna heimsfaraldurs. Það var því mikil eftirvænting hjá hópnum sem mörg hver voru að fara í fyrsta sinn.…Lesa meira

true

Vítaverður framúrakstur

Í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi kom í vikunni sem leið tilkynning um vítaverðan akstur á Holtavörðuheiði. Myndskeið af athæfinu rataði í fjölmiðla en þar sést vítaverður framúrakstur með þeim afleiðingum að bíllinn rétt sleppur milli tveggja bíla sem eru að mætast. Í liðinni viku voru um 60 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæminu.…Lesa meira

true

Allt frá saumnálum til hjólastóla til í Dísubúð

Blaðamaður Skessuhorns tók eftir nýlegri verslun á ferð sinni um Búðardal. Þar hefur nú verið opnuð verslun sem systurnar Edda Heiða og Inga Margrét Guðmundsdóttir sjá um. Edda býr á Hvammstanga en Inga býr í Reykjavík. „Við leigjum okkur íbúðarhúsnæði hér í Búðardal og leggjum þetta á okkur til að lífga upp á mannlífið hér…Lesa meira

true

Tveir árekstrar í vikunni

Tvö umferðarslys voru skráð í dagbók Lögreglunnar á Vesturlandi í vikunni. Árekstur varð á gatnamótum Grundargötu og Fagurhólstúns í Grundarfirði en minni háttar meiðsl voru á fólki en annar bíllinn var óökufær. Annar árekstur varð í Árnabrekku á Snæfellsnesvegi en tengivagn með timbri á losnaði aftan úr bifreið og fór framan á bifreið sem kom…Lesa meira