Skráningu á Unglingalandsmót UMFÍ lýkur á morgun

Unglingalandsmót Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) hefst í Borgarnesi kl. 15:00 næstkomandi fimmtudag og verður vegleg dagskrá í boði allt til miðnættis á sunnudagskvöld. Undirbúningur er í fullum gangi og að honum koma auk mótshaldara bæði einstaklingar og félagasamtök í héraði. Þátttökugjald er 9.400 kr. og innifalið í því er þátttaka í öllum keppnisgreinum, viðburðum og afþreyingu mótsins. Einnig er gisting á tjaldsvæði innifalin, en það er á Kárastöðum, rétt utan við bæinn. Borgfirskar börgunarsveitir munu annast gæslu á svæðinu og strætó mun ganga þaðan að aðal keppnissvæðinu frá kl. 08:30 og fram yfir síðustu keppnisgrein.

Skráningu á Unglingalandsmót UMFÍ lýkur á morgun - Skessuhorn