
Systurnar Edda Heiða Guðmundsdóttir og Inga Margrét Guðmundsdóttir. Ljósmyndir: hig
Allt frá saumnálum til hjólastóla til í Dísubúð
Blaðamaður Skessuhorns tók eftir nýlegri verslun á ferð sinni um Búðardal. Þar hefur nú verið opnuð verslun sem systurnar Edda Heiða og Inga Margrét Guðmundsdóttir sjá um. Edda býr á Hvammstanga en Inga býr í Reykjavík. „Við leigjum okkur íbúðarhúsnæði hér í Búðardal og leggjum þetta á okkur til að lífga upp á mannlífið hér á svæðinu. Við erum með opið alla daga frá klukkan 11 til 19 nema þegar við þurfum eitthvað að skreppa frá,“ segir Edda Heiða sem tekur á móti gestum og gangandi.