Skátafélagið Örninn fór á landsmót

Landsmót skáta fór fram dagana 12.-19. júlí og segja má að krakkarnir hafi fengið allskonar veður á þessu móti. Landsmót skáta hafði ekki verið haldið síðan 2016 þar sem ekki var hægt að halda mót árið 2020 vegna heimsfaraldurs. Það var því mikil eftirvænting hjá hópnum sem mörg hver voru að fara í fyrsta sinn. Það var mikið fjör alla dagana þrátt fyrir bleytu í nokkra daga og allir í hópnum nutu sín til hins ýtrasta. Það var því kátur hópur sem sneri heim til Grundarfjarðar eftir landsmótsvikuna þar sem allir voru reynslunni ríkari.

Skátafélagið Örninn fór á landsmót - Skessuhorn