Dio Tríó gefur út sína fyrstu plötu

Fyrsta plata Dio Tríó kemur út í dag þriðjudaginn 30. júlí og kallast hún Vesturgata eftir samnefndri götu á Akranesi þar sem rætur þess liggja. Í tríóinu eru í raun fjórir meðlimir, þeir Hlynur Ben (söngur, kassagítar og hljóðgervlar), Erlingur Viðarsson (rafgítar, básúna og söngur), Hjörtur „Dötti“ Rúnarsson (bassi, klukkuspil og söngur) og Ásmundur Haraldsson (trommur og söngur). Einnig leggur Birgir Þórisson bæjarlistamaður Akraness sveitinni lið á píanó og Gunnhildur Vilhjálmsdóttir leikur á harmoniku og trompet í laginu Djöfulsdráttur; „Allir hafa sinn djöful að draga, þannig er sú leiðindasaga...“

Dio Tríó gefur út sína fyrstu plötu - Skessuhorn