Fréttir

true

Bríet var á ferð um Vesturland

Söngkonan Bríet hélt tónleika á Vesturlandi í vikunni sem leið. Byrjaði ferð sína á Akranesi á miðvikudaginn en hélt síðan vestur á Snæfellsnes. Í Samkomuhúsinu í Grundarfirði var hún með tónleika á fimmtudaginn. Þar steig hún á svið ásamt Magnúsi Jóhanni Ragnarssyni hljómborðsleikara og Bergi Einari Dagbjartssyni trommuleikara. Söngkonan lék á alls oddi og var…Lesa meira

true

Skagakonur réðu ekki við toppliðið

Efsta lið Lengjudeildarinnar, Austfjarðarliðið FHL (Fjarðabyggð/ Höttur / Leiknir) mætti á Akranes og vann öruggan sigur á Skagakonum í ÍA; 1:3 í Akraneshöllinni í gær. Eftir nokkuð jafnræði sem var með liðunum framan af leik skoraði FHL tvö mörk á á tveggja mínútna kafla. Fyrra markið kom þegar Samantha Rose Smith óð þá óáreitt upp…Lesa meira

true

Leggja inn endurnýjað tilboð í eignir Skagans 3X

Hópur fjárfesta, sem föstudaginn 12. júlí síðastliðinn lagði inn tilboð um kaup á eignum og rekstri þrotabús Skagans 3X á Akranesi, hefur nú sex dögum síðar lagt inn endurnýjað tilboð. Helgi Jóhannesson skiptastjóri þrotabúsins staðfestir í samtali við Skessuhorn að endurnýjað tilboð hafi borist og það sé í skoðun, en ekki væri á þessum tímapunkti…Lesa meira

true

Káramenn mæta Tindastóli í 8-liða úrslitum fótbolta.net mótsins

Dregð var í hádeginu í átta liða úrslit fóbolta.net mótsins í knattspyrnu, sem er bikarkeppni neðri deildar liða. Kári frá Akranesi tryggði sig í átta liða úrslitin með sigri gegn Magna frá Grenivík 1:0 sl. miðvikudag í leik sem fram fór í Akraneshöllinni. Þegar dregið var í 8-liða úrslitin lentu Káramenn aftur gegn liði af…Lesa meira

true

Víðtæk áhrif vegna galla í uppfærslu á Windows kerfum

Fjölmiðlar um allan heim greina í dag frá því að tæknileg vandamál eru að valda flugfélögum vandræðum, en einnig bönkum, fjölmiðlum og annarri starfsemi. Breska ríkisútvarpið greinir frá því að talið sé að vandræðin eigi rætur sínar að rekja til netöryggisfyrirtækisins Crowdstrike sem framleiðir vírusvarnir. Einhvers konar gölluð uppfærsla í hugbúnaðinum þeirra hefur haft þau…Lesa meira

true

Mun fleiri ánægðir með störf Guðna en Ólafs Ragnars

Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu er 81% landsmanna ánægðir með störf Guðna Th. Jóhannessonar forseta Íslands nú á síðasta ári hans í embætti. Til samanburðar voru 59% landsmanna ánægðir með störf Ólafs Ragnars Grímssonar á síðasta ári sem hann gegndi forsetaembættinu. Guðni hefur notið mikilla vinsælda í embætti og hefur ánægja með störf hans verið frá…Lesa meira

true

Skyttur tylltu sér á stein í kvöldhúminu

Þeir hafa í sameiningu unnið á grenjum, kortlagt eldri greni og legið fyrir tófu á fjöllum, félagarnir Bjarni Árnason frá Brennistöðum og Snorri Jóhannesson á Augastöðum í Borgarfirði. Nýverið voru þeir að huga að grenjum á jöðrunum fremst í Húsafellsskógi. Þóra Árnadóttir systir Bjarna var með í för og tók mynd af þeim félögum hvar…Lesa meira

true

Hagkerfi víkingaaldar og landnám Íslands efni fyrirlestrar í Reykholti

Þriðjudaginn 23. júlí kl. 20 flytur Jón Viðar Sigurðsson, prófessor í sagnfræði við Oslóarháskóla, fyrirlestur í Snorrastofu í Reykholti, sem ber yfirskriftina  „Hagkerfi víkingaaldar og landnám Íslands“. Fyrirlesturinn, sem er hluti af fyrirlestraröðinni „Fyrirlestrar í héraði“, er öllum opinn og er aðgangur ókeypis. „Við Íslendingar erum alin upp í þeirri söguskoðun að landnámið (um það…Lesa meira

true

Gerði fína veiðiferð inn á Arnarvatnsheiði

„Já, ég skrapp inn á Arnarvatnsheiði í gær og það gekk bara vel, en þetta er fyrsta ferðin þangað í sumar,“ sagði Ingólfur Kolbeinsson í samtali við Skessuhorn. Veiðin hefur verið ágæt á heiðinni í sumar eftir að vötnin tóku að hlýna. „Ég fór í Arnarvatn stóra og Réttarvatn. Þetta voru mest 2ja til 4ra…Lesa meira

true

Minjavörður á Vesturlandi í aldarfjórðung

Rætt við Magnús A. Sigurðsson minjavörð Vesturlands Blaðamaður Skessuhorns settist niður með Magnúsi A Sigurðssyni á Kaffi Kyrrð í Borgarnesi í síðustu viku. Farið var yfir verkefnastöðuna á Vesturlandi, feril Magnúsar og forvitnast um dagleg störf hans við minjavörslu á Vesturlandi. Alls eru átta landsvæði á Íslandi þar sem minjaverðir eru til starfa. Á flestum…Lesa meira