
Víðtæk áhrif vegna galla í uppfærslu á Windows kerfum
Fjölmiðlar um allan heim greina í dag frá því að tæknileg vandamál eru að valda flugfélögum vandræðum, en einnig bönkum, fjölmiðlum og annarri starfsemi. Breska ríkisútvarpið greinir frá því að talið sé að vandræðin eigi rætur sínar að rekja til netöryggisfyrirtækisins Crowdstrike sem framleiðir vírusvarnir. Einhvers konar gölluð uppfærsla í hugbúnaðinum þeirra hefur haft þau áhrif að tölvur sem nota búnaðinn verði fyrir kerfisbilun. Í yfirlýsingu sem framkvæmdastjóri Crowdstrike sendi segir: „Crowdstrike vinnur skilvirkt með viðskiptavinum sem orðið hafa fyrir áhrifum af galla í uppfærslu á Windows-kerfum. Mac og Linux vélar verða ekki fyrir áhrifum. Þetta er ekki öryggismál eða netárás. Málið hefur verið greint, einangrað og lagfæring hefur verið sett í gang.“
Fyrstu bilana varð vart upp úr klukkan 22 í gærkvöld að íslenskum tíma. Nú í dag hafa orðið tafir á flugvöllum í Evrópu og víðar og langar biðraðir eru í verslunum þar sem erfitt er að koma greiðslum í gegn. Þá gætir áhrifanna víðar, meðal annars í tölvukerfum hér á landi.