
Bjarni Árnason og Snorri Jóhannesson. Ljósm. þá
Skyttur tylltu sér á stein í kvöldhúminu
Þeir hafa í sameiningu unnið á grenjum, kortlagt eldri greni og legið fyrir tófu á fjöllum, félagarnir Bjarni Árnason frá Brennistöðum og Snorri Jóhannesson á Augastöðum í Borgarfirði. Nýverið voru þeir að huga að grenjum á jöðrunum fremst í Húsafellsskógi. Þóra Árnadóttir systir Bjarna var með í för og tók mynd af þeim félögum hvar þeir tylla sér á stein í blíðunni. Skessuhorn fékk góðfúslegt leyfi Þóru til að birta myndina. Umhverfið er vissulega fallegt og sólin teygði geisla sína ofan við Tunguna þessa sumarnótt og rammaði þá félaga inn.