Fréttir

true

Búast við allt að átta þúsund gestum á landsmót UMFÍ

Undirbúningur fyrir Unglingalandsmót UMFÍ í Borgarnesi er nú í fullum gangi. „Við erum komin með þétta dagskrá; 18 keppnisgreinar, helling af afþreyingu fyrir alla fjölskylduna og búin að raða upp tónlistarfólki sem kemur fram á fjórum kvöldum,“ segir Jón Aðalsteinn Bergsveinsson kynningarfulltrúi UMFÍ. Búist er við rúmlega eitt þúsund þátttakendum á mótið á aldrinum 11…Lesa meira

true

Covid-19 að breiðast hratt út – Landspítalinn grípur til aðgerða

Í tilkynningu sem var að berast frá farsóttardeild Landspítalans kemur fram að talsverð aukning Covid smita er í samfélaginu og spítalinn kallar á aðgerðir til að stemma stigu við aukinni útbreiðslu. „Að undanförnu hefur Covid skotið upp kollinum á átta deildum spítalans og breiðst hratt út á nokkrum þeirra. Sjúklingar hafa smitast og verið einangraðir…Lesa meira

true

Kollafjörður lokaður fyrir umferð til norðurs í kvöld og nótt

Í kvöld 16. júlí, frá kl. 19:00 til kl. 06:00 í fyrramálið, verður Vesturlandsvegur í Kollafirði lokaður í norðurátt vegna malbikunarframkvæmda á milli Mógilsár og Stekkjarvegar. Vegfarendum á leið norður Kollafjörð og Kjalarnes verður beint á hjáleið um Þingvallaveg (Mosfellsheiði), Kjósarskarðsveg og Hvalfjarðarveg og þaðan ofan í Hvalfjarðargöng. Umferð á leið suður getur ekið framhjá…Lesa meira

true

Systkini á verðlaunapall í sitthvoru landinu sömu helgina

Það er gaman að segja frá því að systkini úr Skorradal náðu þeim góða árangri að vinna um liðna helgi meistaratitla í fjölþraut í sínum aldursflokki. En mótin sem þau kepptu á fóru fram í sitt hvoru landinu. Eyja Gautadóttir varð sænskur meistari í fjölþraut 15 ára stúlkna í keppni í Svíþjóð. Ari Freyr Gautason…Lesa meira

true

Mikið fjör á blautu Símamóti

Hið árlega Símamót Breiðabliks fór fram um liðna helgi þar sem þrjú þúsund stelpur öttu kappi á Kópavogsvelli og í Fagralundi. Aðstæður voru nokkuð blautar og þurfti til að mynda að færa nokkra leiki inn í Fífuna þar sem grasvellirnir voru farnir að láta á sjá á laugardeginum. Snæfellsnessamstarfið sendi þrjú lið til keppni að…Lesa meira

true

Sturluhátíð vel sótt þrátt fyrir veður

Sturluhátíðin var haldin á laugardaginn en hún er haldin árlega og er kennd við sagnaritarann Sturla Þórðarson sem bjó á Staðarhóli í Saurbæ í Dölum. Hátíðin hófst með afhjúpun tveggja söguskilta á Staðarhóli en það var Einar K. Guðfinnsson, formaður Sturlufélagsins, sem afhjúpaði skiltin. „Með þessum áfanga erum við enn betur að koma sögu sagnaritarans…Lesa meira

true

243 íbúðir eru nú í byggingu á Vesturlandi

Alls eru 7.026 íbúðir í byggingu um land allt og hefur fjöldi þeirra haldist stöðugur á síðustu mánuðum. Þetta kemur fram á heimasíðu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Tæplega 60% íbúðanna sem nú er verið að byggja eru á höfuðborgarsvæðinu og um fjórðungur í sveitarfélögum í nágrenni þess. Um 77% af íbúðum í byggingu á landinu eru…Lesa meira

true

Slæmt tap Skagamanna gegn botnliði Fylkis

Skagamenn hafa greinilega ekki verið komnir niður á jörðina aftur eftir stórsigurinn gegn HK í síðustu umferð þegar þeir mættu botnliði Fylkis og töpuðu 0:3 á Wurth vellinum í Árbæ í gærkvöldi. Skagamenn byrjuðu betur í leiknum en það vantaði samt alla ákefð og boltinn gekk allt of hægt á milli manna. Fylkismenn gengu því…Lesa meira

true

Akranesmeistarar í golfi

Meistaramót Golfklúbbsins Leynis á Akranesi fór fram dagana 9. -13. júlí. Spilað var við erfiðar aðstæður á Garðavelli en völlurinn var á floti vegna mikillar rigningar og var lokaumferð mótsins flautuð af vegna veðurs. Meðal helstu úrslita voru að Stefán Orri Ólafsson bar sigur úr býtum í meistaraflokki karla og Ruth Einarsdóttir í fyrsta flokki…Lesa meira

true

Veiðistjórnunartillögur fyrir rjúpnaveiði

Umhverfisstofnun hefur sent inn veiðistjórnunartillögur fyrir rjúpu árið 2024 til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis. Samkvæmt drögum að nýrri stjórnunar- og verndaráætlun á rjúpu skulu veiðidagar vera heilir og veiði hefjast fyrsta föstudag á eða eftir 20. október. Veiði er heimil frá og með föstudegi til og með þriðjudags innan tímabilsins. Því er óleyfilegt að veiða…Lesa meira