
Covid-19 að breiðast hratt út – Landspítalinn grípur til aðgerða
Í tilkynningu sem var að berast frá farsóttardeild Landspítalans kemur fram að talsverð aukning Covid smita er í samfélaginu og spítalinn kallar á aðgerðir til að stemma stigu við aukinni útbreiðslu.
„Að undanförnu hefur Covid skotið upp kollinum á átta deildum spítalans og breiðst hratt út á nokkrum þeirra. Sjúklingar hafa smitast og verið einangraðir skv. verklagsreglum þar um, en einnig er talsvert um að starfsfólk smitist og sé frá vinnu jafnvel í marga daga. Nú að morgni 16. júlí eru 32 sjúklingar í einangrun vegna Covid á Landspítala í þremur húsum (Landakot, Hringbraut og Fossvogur) og er þetta þriðja sumarið sem bylgja COVID sýkinga herjar á landsmenn. Vert er að árétta að sjúklingar með veirusýkingar í öndunarfærum og einkenni af þeim eru alltaf einangraðir frá öðrum hvort sem um er að ræða inflúensu, RS veiru eða Covid. Ávallt er viðhöfð grundvallarsmitgát í öllum sjúklingasamskiptum en nú er nauðsynlegt að grípa til frekari aðgerða sem reyndust vel í fyrri Covid bylgjum.“
Á Landspítala munu eftirfarandi aðgerðir taka gildi í fyrramálið klukkan 07:
Grímuskylda í öllum sjúklingasamskiptum. Þá gildir að starfsfólk ber grímu í samskiptum við inniliggjandi sjúklinga. Þeir sem koma á göngudeildir skulu bera grímu og einnig er öllum heimsóknargestum og öðrum utanaðkomandi aðilum skylt að bera grímu. Starfsfólk þarf ekki að bera grímu í starfsmannarýmum nema það sé með einkenni sem gætu bent til öndunarfærasýkingar.
Handhreinsun: Öllum er skylt að hreinsa hendur enda er það einfaldasta og áhrifaríkasta leiðin til að rjúfa smitleiðir.
Heimsóknatakmarkanir: Heimsóknartími verður styttur og verður nú frá 17-19 virka daga og frá 15-18 um helgar. Mælst er til að börn undir 12 ára aldri komi ekki í heimsókn og að ekki komi fleiri en tveir í einu til hvers sjúklings. Eins og áður er alltaf tekið tillit til aðstæðna og undanþágur gefnar (vaktstjóri á deild) en þetta er meginlínan.
Þegar faraldur er á deild er heimilt að loka alveg fyrir heimsóknir tímabundið en hafa þó áfram þann möguleika að gefa undanþágur.
Þessar reglur taka gildi miðvikudaginn 17. júlí kl. 8 og verða endurskoðaðar mánudaginn 21. júlí á fundi farsóttanefndar og sýkingavarnadeildar.
"Við væntum góðrar samvinnu við alla hlutaðeigandi. Það er mikið í húfi og aðeins með samstilltu átaki náum við árangri. Eins og áður er netfangið farsottanefnd@landspitali.is virkt og þangað er hægt að beina fyrirspurnum á dagvinnutíma."