
Systkini á verðlaunapall í sitthvoru landinu sömu helgina
Það er gaman að segja frá því að systkini úr Skorradal náðu þeim góða árangri að vinna um liðna helgi meistaratitla í fjölþraut í sínum aldursflokki. En mótin sem þau kepptu á fóru fram í sitt hvoru landinu. Eyja Gautadóttir varð sænskur meistari í fjölþraut 15 ára stúlkna í keppni í Svíþjóð. Ari Freyr Gautason bróðir hennar varð á sama tíma Íslandsmeistari í sömu keppnisgrein 12 ára drengja. Þau systkinin eru bæði skráð í UMSB og eru ættuð frá Efri-Hrepp í Skorradal og er félagslið þeirra Umf. Íslendingur. Á meistaramóti Íslands sem fram fór á Laugum var annar keppandi frá UMSB, Ólafur Fannar Davíðsson. Hann stóð sig sömuleiðis vel og fékk brons í kringlukasti í sínum aldursflokki.