Það var hvasst en bjart á Staðarhóli þar sem Einar K. Guðfinsson formaður Sturlufélagsins afhjúpaði tvö söguskilti til viðbótar við þau sem áður hefur verið komið upp á hinu forna höfuðbóli sagnaritarans Sturlu Þórðarsonar. Ljósmyndir. sla

Sturluhátíð vel sótt þrátt fyrir veður

Sturluhátíðin var haldin á laugardaginn en hún er haldin árlega og er kennd við sagnaritarann Sturla Þórðarson sem bjó á Staðarhóli í Saurbæ í Dölum. Hátíðin hófst með afhjúpun tveggja söguskilta á Staðarhóli en það var Einar K. Guðfinnsson, formaður Sturlufélagsins, sem afhjúpaði skiltin. „Með þessum áfanga erum við enn betur að koma sögu sagnaritarans Sturlu Þórðarsonar og þessa forna höfuðbóls á framfæri en nú í seinni tíð hefur lítið farið fyrir því,“ sagði Einar. Skiltin tvö bætast við fleiri söguskilti sem sett voru á Staðarhól í fyrra. Einar sagði að gamni í ræðu sinni að markmiðið væri að setja met í þéttleika skilta.

Sturluhátíð vel sótt þrátt fyrir veður - Skessuhorn