Á Akranesi eru nú í byggingu 120 íbúðir. Af þeim eru 51 íbúð í fjölbýlishúsi sem Bestla byggir við Garðabraut 1. Ljósm. mm

243 íbúðir eru nú í byggingu á Vesturlandi

Alls eru 7.026 íbúðir í byggingu um land allt og hefur fjöldi þeirra haldist stöðugur á síðustu mánuðum. Þetta kemur fram á heimasíðu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Tæplega 60% íbúðanna sem nú er verið að byggja eru á höfuðborgarsvæðinu og um fjórðungur í sveitarfélögum í nágrenni þess. Um 77% af íbúðum í byggingu á landinu eru í fjölbýlishúsum en hlutfall fullbúinna íbúða sem eru í fjölbýlishúsum er 62%. Það má því segja að meiri áhersla sé nú á byggingu íbúða í fjölbýli, heldur en sérbýla, og þá sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu þar sem um 92% íbúða í byggingu er í fjölbýlishúsum.

243 íbúðir eru nú í byggingu á Vesturlandi - Skessuhorn