Fréttir

true

Þorri heilsar með látum

Nú gengur lægð yfir suðvestanvert landið með stórhríð. Gul viðvörun er í gildi til klukkan 13 í dag á Faxaflóasvæðinu, en það verður suðvestan 18-25 m/s og éljagangur. Fólk er hvatt til að sýna aðgát. Meðfylgjandi mynd var tekin nú rétt í þessu við Garðabraut á Akranesi, en þar sér vart á milli húsa í…Lesa meira

true

Mikið rætt um framkvæmdir

Á fundi bæjarráðs Grundarfjarðarbæjar síðasta miðvikudag var farið yfir stöðu framkvæmda í bænum á árinu, þau verkefni sem farin eru af stað og verkefnin framundan. Rætt var um hönnun sundlaugargarðs og hvað felst í þeirri vinnu varðandi rennibraut og fleira. Rætt var um fyrirhugaðar framkvæmdir á tjaldsvæði, merkingar á tjaldsvæði, stöðu verkefna í Þríhyrningi og…Lesa meira

true

Atvinnulausum fjölgaði í desember

Í desember síðastliðnum voru 8.900 atvinnulausir samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Atvinnuleysi var 3,9%, hlutfall starfandi á vinnumarkaði var 76,8% og atvinnuþátttaka var 79,9%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi jókst um 0,7 prósentustig á milli mánaða á sama tíma og hlutfall starfandi dróst saman um 1,9 prósentustig og atvinnuþátttaka um 1,4 stig.Lesa meira

true

Flokkun lífræns úrgangs hluti af skyldum sveitarfélaga

Fyrir stuttu var greint frá því í Skessuhorni að Íslenska gámafélagið hefði breytt fyrirkomulagi við söfnun matarleifa og kveðið á um að í stað maíspoka verði notaðir bréfpokar. Fram kom í fundargerð hjá Dalabyggð að sveitarfélagið styddi við það fyrirkomulag enda sé það að verða ráðandi á landinu sem umhverfisvænni leið. Lífrænn úrgangur í sveitarfélaginu…Lesa meira

true

Kynntu nýjar vinnureglur um vinnu verktaka og einyrkja

Miðvikudaginn 17. janúar sl. hélt atvinnumálanefnd Dalabyggðar fund með verktökum og iðnaðarmönnum úr sveitarfélaginu þar sem farið var yfir framkvæmdaáætlun sveitarfélagsins. Þar voru einnig kynntar nýjar vinnureglur sem munu gilda um vinnu verktaka og einyrkja fyrir sveitarfélagið Dalabyggð og tengd félög. Á sama fundi var það tilkynnt að eftirleiðis munu verktakar og einyrkjar sem hafa…Lesa meira

true

Arnar Geir kjörinn Íþróttamaður HSH

Síðastliðinn þriðjudag fór fram afhending verðlauna til Íþróttafólks HSH. Arnar Geir Diego Ævarsson var kjörinn Íþróttamaður HSH 2023 ásamt því að vera Skotíþróttamaður HSH. Að auki var dugnaðarforkum og sjálfboðaliðum HSH veittar viðurkenningar fyrir þeirra störf. Arnar Geir hefur verið mjög virkur í starfinu hjá Skotfélagi Snæfellsness á nýliðnu ári og tekið þátt í fjölda…Lesa meira

true

Vegagerðin býður ungmennum frá Grindavík frítt í landsbyggðarstrætó

Vegagerðin hefur ákveðið að styðja við Grindvíkinga á þessum fordæmalausu tímum og bjóða 12-17 ára ungmennum frá Grindavík að fá frítt strætókort sem gildir í landsbyggðarvagna. Kortin eru hugsuð fyrir ungmenni sem þurfa að sækja þjónustu eða afþreyingu á höfuðborgarsvæðið eða á Suðurnes og munu gilda fyrir Suðurnes, Suðurland eða Vesturland. Hægt er að sækja…Lesa meira

true

Ríkislögreglustjóri vill efla löggæslu í Dalabyggð

Embætti ríkislögreglustjóra skilaði undir lok nýliðins árs ítarlegri skýrslu um þörf fyrir aukna löggæslu í Dalabyggð. Skýrslan var kynnt á fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar 18. janúar sl. og sveitarstjóra þar falið að koma henni á framfæri við yfirvöld í samstarfi við lögregluembættið á Vesturlandi. Í niðurstöðum ríkislögreglustjóra kemur fram að byggð og landfræðilegar forsendur í umdæmi…Lesa meira

true

Óvenju mikið um að auðnutittlingar séu að drepast

Óvenju margar ábendingar víða af landinu hafa að undanförnu borist Matvælastofnun um dauða auðnutittlinga. Eru þær frá fólki sem reglulega fóðrar smáfugla. Matvælastofnun mun á næstunni reyna að komast að því hvað veldur þessum dauða. Auðnutittlingur er lítill finkufugl og er staðfugl á Íslandi. Fuglinn er frææta og byggir tilveru sína á birkifræi og leitar…Lesa meira

true

LbhÍ stýrir verkefni um kynbætur á korni

Matvælaráðuneytið hefur undirritað samkomulag við Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) um framkvæmd verkefnis vegna kynbóta á byggi, hveiti og höfrum til ræktunar á Íslandi. Verkefnið er fyrsta sinnar tegundar hér á landi en ekki hefur verið unnið að kynbótum áður á hveiti og höfrum hérlendis. Nýjustu aðferðum við kynbætur í nytjaplöntum, sem ekki hefur verið nýtt hérlendis…Lesa meira