Mynd frá fundinum. Ljósm. dalir.is

Kynntu nýjar vinnureglur um vinnu verktaka og einyrkja

Miðvikudaginn 17. janúar sl. hélt atvinnumálanefnd Dalabyggðar fund með verktökum og iðnaðarmönnum úr sveitarfélaginu þar sem farið var yfir framkvæmdaáætlun sveitarfélagsins. Þar voru einnig kynntar nýjar vinnureglur sem munu gilda um vinnu verktaka og einyrkja fyrir sveitarfélagið Dalabyggð og tengd félög. Á sama fundi var það tilkynnt að eftirleiðis munu verktakar og einyrkjar sem hafa áhuga á að starfa fyrir Dalabyggð og hin tengdu félög, þurfa að skila inn yfirlýsingu þar um. Vinnureglurnar voru samþykktar á fundi sveitarstjórnar 18. janúar.

Kynntu nýjar vinnureglur um vinnu verktaka og einyrkja - Skessuhorn