
Þorri heilsar með látum
Nú gengur lægð yfir suðvestanvert landið með stórhríð. Gul viðvörun er í gildi til klukkan 13 í dag á Faxaflóasvæðinu, en það verður suðvestan 18-25 m/s og éljagangur. Fólk er hvatt til að sýna aðgát. Meðfylgjandi mynd var tekin nú rétt í þessu við Garðabraut á Akranesi, en þar sér vart á milli húsa í hryðjunum. Áfram er spáð éljagangi um sunnan- og vestanvert landið í dag og á morgun, frost verður 0 til 7 stig.