
Í dag er skylt að safna í sex flokka og er lífræna sorpið einn þeirra.
Flokkun lífræns úrgangs hluti af skyldum sveitarfélaga
Fyrir stuttu var greint frá því í Skessuhorni að Íslenska gámafélagið hefði breytt fyrirkomulagi við söfnun matarleifa og kveðið á um að í stað maíspoka verði notaðir bréfpokar. Fram kom í fundargerð hjá Dalabyggð að sveitarfélagið styddi við það fyrirkomulag enda sé það að verða ráðandi á landinu sem umhverfisvænni leið. Lífrænn úrgangur í sveitarfélaginu verður því framvegis flokkaður í bréfpoka í stað maíspoka. Í tengslum við fréttina ákvað Skessuhorn að kanna stöðuna hjá öðrum sveitarfélögum í landshlutanum og hafa svör borist frá nokkrum þeirra.