Dalamenn hafa ítrekað mótmælt skertri löggæslu í Dölum á undanförnum árum. Hafa meðal annars safnað undirskriftum og afhent dómsmálaráðherrum hvers tíma. Meðfylgjandi skopmynd Bjarna Þórs birtist þannig í Skessuhorni ári 2011 og talar sínu máli.

Ríkislögreglustjóri vill efla löggæslu í Dalabyggð

Embætti ríkislögreglustjóra skilaði undir lok nýliðins árs ítarlegri skýrslu um þörf fyrir aukna löggæslu í Dalabyggð. Skýrslan var kynnt á fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar 18. janúar sl. og sveitarstjóra þar falið að koma henni á framfæri við yfirvöld í samstarfi við lögregluembættið á Vesturlandi. Í niðurstöðum ríkislögreglustjóra kemur fram að byggð og landfræðilegar forsendur í umdæmi Lögreglustjórans á Vesturlandi kalli á staðsetningu lögreglustöðvar í Búðardal eða að Dalabyggð verði skilgreind sem sérstakt varðsvæði og eftirlitsbifreið höfð til staðar á sambærilegum tíma og lögreglustöð væri annars mönnuð.

Ríkislögreglustjóri vill efla löggæslu í Dalabyggð - Skessuhorn