Fréttir

true

Ríkislögreglustjóri vill efla löggæslu í Dalabyggð

Embætti ríkislögreglustjóra skilaði undir lok nýliðins árs ítarlegri skýrslu um þörf fyrir aukna löggæslu í Dalabyggð. Skýrslan var kynnt á fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar 18. janúar sl. og sveitarstjóra þar falið að koma henni á framfæri við yfirvöld í samstarfi við lögregluembættið á Vesturlandi. Í niðurstöðum ríkislögreglustjóra kemur fram að byggð og landfræðilegar forsendur í umdæmi…Lesa meira

true

Óvenju mikið um að auðnutittlingar séu að drepast

Óvenju margar ábendingar víða af landinu hafa að undanförnu borist Matvælastofnun um dauða auðnutittlinga. Eru þær frá fólki sem reglulega fóðrar smáfugla. Matvælastofnun mun á næstunni reyna að komast að því hvað veldur þessum dauða. Auðnutittlingur er lítill finkufugl og er staðfugl á Íslandi. Fuglinn er frææta og byggir tilveru sína á birkifræi og leitar…Lesa meira

true

LbhÍ stýrir verkefni um kynbætur á korni

Matvælaráðuneytið hefur undirritað samkomulag við Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) um framkvæmd verkefnis vegna kynbóta á byggi, hveiti og höfrum til ræktunar á Íslandi. Verkefnið er fyrsta sinnar tegundar hér á landi en ekki hefur verið unnið að kynbótum áður á hveiti og höfrum hérlendis. Nýjustu aðferðum við kynbætur í nytjaplöntum, sem ekki hefur verið nýtt hérlendis…Lesa meira

true

Sindri stöðvaði sigurgöngu Skagamanna

Sindri og ÍA áttust við í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og var leikurinn í Ice Lagoon höllinni á Höfn í Hornafirði. Fyrir viðureignina voru Sindramenn með 18 stig í fjórða sæti og Skagamenn í 5.-6. sæti ásamt Þrótti Vogum með 14 stig. Með sigri hefðu Skagamenn unnið sinn fjórða sigur í röð…Lesa meira

true

Ekkert varð af samningi breiðfylkingar launafólks við SA

Síðdegis í gær varð ljóst að þáttaskil munu verða í kjaraviðræðum þegar breiðfylking stéttarfélaga innan ASÍ, sem hefur þorra launafólks innan sinna vébanda, vísaði deilu sinni við Samtök atvinnulífsins (SA) til ríkissáttasemjara. Samtalið hefur nú verið í gangi í mánuð. Það sem gerði útslagið að viðræðum var slitið í gær var tilboð SA um enn…Lesa meira

true

Niðurröðun í Lengjubikarnum 2024 staðfest

Mótanefnd KSÍ hefur staðfest niðurröðun leikja í Lengjubikarnum árið 2024. Lengjubikarinn hefur síðustu ár fest sig í sessi sem helsta undirbúningsmót liða fyrir Íslandsmótið í knattspyrnu. Skessuhorn tekur hér saman það helsta af leikjum liðanna af Vesturlandi. Skagamenn leika í A-deild karla og eru með Aftureldingu, Dalvík/Reyni, Leikni R., Víkingi R. og KA í riðli…Lesa meira

true

Lungnaormur greinist í fyrsta skipti hér á landi í hundi

Lungnaormurinn Crenosoma vulpis greindist í sýni úr hundi sem fluttur var til landsins fyrir ári síðan. Í tilkynningu frá Matvælastofnun kemur fram að um er að ræða sníkjuþráðorm sem fer í lungu hýsilsins, sem oftast er refur, og því er sníkjudýrið oft nefndur „lungnaormur refsins“. Þessi tegund lungnaorms hefur ekki áður fundist áður hér á…Lesa meira

true

Hálka og blautir vegir

Allar helstu leiðir á Vesturlandi eru færar, utan Laxárdalsheiði þar sem er ófært. Vegagerðin bendir á að flughálka er á Holtavörðuheiði og í Álftafirði. Krapi, hálka, hálkublettir eða snjóþekja eru á nokkrum leiðum. Þá bendir Vegagerðin á að mikið vatn safnast í hjólför og ójöfnur á Hringvegi (1) milli Bifrastar og Baulu í Borgarfirði og…Lesa meira

true

Sviðasulta og bjór á bókasafninu

Á Vökudögum síðasta haust bauð Akraneskaupstaður upp á brauðtertu, bjór og afar áhugverða frásögn Haraldar Benediktssonar bæjarstjóra um Jón Hreggviðsson. Var viðburðurinn í Stúkuhúsinu á Safnasvæðinu og komust færri að en vildu. „Það tókst heldur betur vel til og höfum við því ákveðið að endurtaka leikinn, nú á Bókasafni Akraness klukkan 17 á bóndadaginn,“ segir…Lesa meira

true

Kíkt á framkvæmdir í elstu álmu Grundaskóla – Myndasyrpa

Akraneskaupstaður stendur nú að umfangsmiklum endurbótum og uppbyggingu í Grundaskóla. C-álman, sem er elsta álma skólans og hýsti áður list- og verkgreinar ásamt kennslustofum fyrir yngstu nemendur skólans, var algjörlega tekin í gegn og í raun endurbyggð frá grunni. Framkvæmdir hófust af krafti fyrir um ári síðan og eru vel á veg komnar. Nú er…Lesa meira