Skýringarmynd sem sýnir hvernig ormurinn getur dreift sér.

Lungnaormur greinist í fyrsta skipti hér á landi í hundi

Lungnaormurinn Crenosoma vulpis greindist í sýni úr hundi sem fluttur var til landsins fyrir ári síðan. Í tilkynningu frá Matvælastofnun kemur fram að um er að ræða sníkjuþráðorm sem fer í lungu hýsilsins, sem oftast er refur, og því er sníkjudýrið oft nefndur „lungnaormur refsins“. Þessi tegund lungnaorms hefur ekki áður fundist áður hér á landi.

Lungnaormur greinist í fyrsta skipti hér á landi í hundi - Skessuhorn