Hálka og blautir vegir

Allar helstu leiðir á Vesturlandi eru færar, utan Laxárdalsheiði þar sem er ófært. Vegagerðin bendir á að flughálka er á Holtavörðuheiði og í Álftafirði. Krapi, hálka, hálkublettir eða snjóþekja eru á nokkrum leiðum.

Þá bendir Vegagerðin á að mikið vatn safnast í hjólför og ójöfnur á Hringvegi (1) milli Bifrastar og Baulu í Borgarfirði og eru djúpir pollar á köflum. Vegafarendur eru beðnir um að aka þar með gát.

Hálka og blautir vegir - Skessuhorn