Á myndinni eru f.v. Anna María Þráinsdóttir, Agnar Sigurjónsson, Sigurjón Skúlason, Alfreð Alfreðsson, Heimir Einarsson, Sigurður Arnar Sigurðsson og Orri Jónsson með son sinn Ægi Frey. Ljósmyndir: vaks

Kíkt á framkvæmdir í elstu álmu Grundaskóla – Myndasyrpa

Akraneskaupstaður stendur nú að umfangsmiklum endurbótum og uppbyggingu í Grundaskóla. C-álman, sem er elsta álma skólans og hýsti áður list- og verkgreinar ásamt kennslustofum fyrir yngstu nemendur skólans, var algjörlega tekin í gegn og í raun endurbyggð frá grunni. Framkvæmdir hófust af krafti fyrir um ári síðan og eru vel á veg komnar. Nú er verið að ganga frá uppsetningu milliveggja, loftræstikerfum og ýmsum tengingum. Vinna er að hefjast við glerjun og að loka þriðju hæðinni sem í framtíðinni mun hýsa skrifstofur, kaffistofu og vinnuaðstöðu fyrir skólann. Verkáætlun gerir ráð fyrir að endurbyggingu verði lokið í byrjun árs 2025 og skólastarf komið á fulla ferð í byrjun haustannar sama ár. Haustið 2025 verða síðan ákveðin kaflaskil í skólasögunni á Akranesi því á þeim tíma tekur Grundaskóli bæði við nýrri og glæsilegri skólabyggingu en einnig nýju skólaíþróttahúsi sem er í byggingu við íþróttamiðstöðina á Jaðarsbökkum.

Kíkt á framkvæmdir í elstu álmu Grundaskóla - Myndasyrpa - Skessuhorn