Fréttir

true

Skora á nemendur að ganga í skólann

Fram kemur í frétt á vef Grundaskóla á Akranesi að á mánudagsmorguninn hafi hreinlega verið umferðarstífla við inngang skólans við Víkurbraut því allt of mörgum börnum var skutlað í skólann þennan dag. „Meðan hlýtt er í veðri og greiðar gönguleiðir í allar áttir er hreint út sagt engin afsökun fyrir neinn að koma ekki labbandi.…Lesa meira

true

Kajus tók þátt í æfingabúðum SSÍ

Æfingahelgi framtíðarhóps Sundsambands Íslands fór fram um helgina í Laugardalnum. Fram kemur í fréttatilkynningu frá SSÍ að markmiðið með æfingahelgum Framtíðarhóps er að fræða og hvetja upprennandi sundfólk ásamt því að styrkja liðsheildina. „Við vonum að þessar æfingahelgar virki hvetjandi, auki metnað hjá sundfólki til að ná árangri og að góð vinabönd myndist óháð félögum…Lesa meira

true

Singles Day hrynur í vinsældum

Íslenskir neytendur nýttu ekki Singles Day til þess að kaupa jólagjafir í ár, en neysla á Singles Day deginum hrundi miðað við ný gögn frá Rannsóknasetri verslunarinnar. Netverslun á Singles Day dróst saman um tæp 40% á milli ára. Þá var samdrátturinn tæp 16% í verslun. „Líkleg skýring fyrir þessu er að Singles Day hitti…Lesa meira

true

FVA komst áfram í Gettu betur

Fyrsta umferð Gettu betur hófst í gærkvöldi í Ríkisútvarpinu með fjórum viðureignum. Fjölbrautaskólinn í Breiðholti, Fjölbrautaskóli Suðurlands, Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi og Menntaskólinn á Ísafirði komust áfram í næstu umferð keppninnar. Fjölbrautaskólinn við Ármúla laut í lægra haldi fyrir Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, 21 – 23. Fjölbrautaskóli Suðurlands vann Borgarholtsskóla, 35 – 15. Fjölbrautaskóli Vesturlands á…Lesa meira

true

Markviss heilsuefling eldri aldurshópa að fara í gang hjá Borgarbyggð

Síðastliðið vor ákvað Borgarbyggð að fá kynningu um verkefni sem tengist heilsuuppbyggingu fólks eftir sextugt. Það er Janus heilsuefling sem hefur sérhæft sig í ákveðinni aðferð til aukinna lífsgæða með hækkandi aldri með fræðslu, þjálfun og breyttum lífsstíl. Borgarbyggð er fyrsta sveitarfélagið á Vesturlandi sem gert hefur samstarfssamning við Janus heilsueflingu um svona verkefni, sem…Lesa meira

true

Fjórðungur íbúa með erlent ríkisfang í fjórum sveitarfélögum af níu

Íbúar á Vesturlandi voru 18.083 talsins 1. janúar síðastliðinn og voru 18.041 mánuði áður samkvæmt skráningu Þjóðskrár. Breyting er því lítil sem engin milli mánaða. Íbúum í fjórðungnum öllum hefur þó fjölgað staðfastlega síðustu árin. Ef horft er til ársins 2019 voru þeir í byrjun desember það ár 16.666 talsins en eru nú 18.083 talsins…Lesa meira

true

Höfðu ekki undan við hálkuvarnir í Borgarfirði

Í síðustu viku skapaðist talsverð umræða um langvarandi hálku sem ríkt hafði, ekki síst á sveitavegum í Borgarbyggð. Eigandi sumarhúss í landi Jarðlangsstaða í Borgarhreppi, sem vakti athygli á hættulegri brekku í þessu sambandi, hafði fengið þá skýringu hjá Borgarbyggð að vegir sem skólabílar færu um væru í forgangi við hálkuvarnir. Skömmu síðar kom íbúi…Lesa meira

true

Þungatakmarkanir taka gildi í fyrramálið

Vegagerðin hefur gefið það út að frá og með morgundeginum; þriðjudagur 9. janúar kl. 08:00, verður viðauki 1 felldur úr gildi og ásþungi takmarkaður. Frá gatnamótum á vegi 54 Snæfellsnesvegi og 58 Stykkishólmsvegi að Bíldhóli verður ásþungi takmarkaður við 7 tonn. Ásþungi verður takmarkaður við 10 tonn á eftirtöldum vegum á Vesturlandi og Vestfjörðum: 54…Lesa meira

true

Atvinna næg á Vesturlandi

Grundarfjarðarbær auglýsti nýverið í Skessuhorni fimm störf hjá sveitarfélaginu. Er þar um að ræða starf skipulagsfulltrúa, byggingafulltrúa, leikskólakennara og þjónustufulltrúa skipulags- og byggingamála og stöðu forstöðumanns bókasafns og menningarmála. Þess má einnig geta að á Facebooksíðu Borgarbyggðar kemur fram að sveitarfélagið hafi auglýst allnokkur störf til umsóknar. Má þar nefna starf aðstoðarmatráðs og leikskólakennara í…Lesa meira

true

Verulega dregur úr fæðingum hér á landi

Fæðingartíðni á Íslandi heldur áfram að lækka. Skessuhorn kannaði stöðuna varðandi fæðingar á nýliðnu ári, bæði á Sjúkrahúsinu á Akranesi og á landsvísu. Þróunin virðist einhlít hvað þetta varðar. Skráðum fæðingum á fæðingadeild Sjúkrahússins á Akranesi fækkaði til muna á síðasta ári miðað við árið 2022. Þær voru 264 á nýliðnu ári. Að sögn Hrafnhildar…Lesa meira