Í atvinnugreinunum fiskvinnslu og ferðaþjónustu er hátt hlutfall starfsfólks erlent vinnuafl. Myndin er frá Arnarstapa. Ljósm. gj

Fjórðungur íbúa með erlent ríkisfang í fjórum sveitarfélögum af níu

Íbúar á Vesturlandi voru 18.083 talsins 1. janúar síðastliðinn og voru 18.041 mánuði áður samkvæmt skráningu Þjóðskrár. Breyting er því lítil sem engin milli mánaða. Íbúum í fjórðungnum öllum hefur þó fjölgað staðfastlega síðustu árin. Ef horft er til ársins 2019 voru þeir í byrjun desember það ár 16.666 talsins en eru nú 18.083 talsins og hefur þá fjölgað um 8,23% á fjórum árum.