Aðstæður svipaðar þeim sem voru í upphafi ársins. Ljósm. úr safni/ Landsbjörg.

Höfðu ekki undan við hálkuvarnir í Borgarfirði

Í síðustu viku skapaðist talsverð umræða um langvarandi hálku sem ríkt hafði, ekki síst á sveitavegum í Borgarbyggð. Eigandi sumarhúss í landi Jarðlangsstaða í Borgarhreppi, sem vakti athygli á hættulegri brekku í þessu sambandi, hafði fengið þá skýringu hjá Borgarbyggð að vegir sem skólabílar færu um væru í forgangi við hálkuvarnir. Skömmu síðar kom íbúi í Norðurárdal því á framfæri að skólaakstursleið hefði ekki verið sinnt sem skyldi þar og að skólabíll hefði orðið að aka löturhægt við hættulegar aðstæður með börn innanborðs. Þá hefur Skessuhorn heimildir fyrir því að íbúar í innsveitum héraðsins hafi sumir hverjir ekki treyst sér til vinnu vegna færðarinnar; glæra hálka lá yfir vegina og vegaxlir. Fjölmargir lentu útaf með bíla sína af þessum sökum.

Höfðu ekki undan við hálkuvarnir í Borgarfirði - Skessuhorn