
Guðveig Eyglóardóttir forseti sveitarstjórnar Borgarbyggðar og Janus Guðlaugsson skrifuðu undir samninginn í október.
Markviss heilsuefling eldri aldurshópa að fara í gang hjá Borgarbyggð
Síðastliðið vor ákvað Borgarbyggð að fá kynningu um verkefni sem tengist heilsuuppbyggingu fólks eftir sextugt. Það er Janus heilsuefling sem hefur sérhæft sig í ákveðinni aðferð til aukinna lífsgæða með hækkandi aldri með fræðslu, þjálfun og breyttum lífsstíl. Borgarbyggð er fyrsta sveitarfélagið á Vesturlandi sem gert hefur samstarfssamning við Janus heilsueflingu um svona verkefni, sem felst í tveggja ára ferli. Aldurshópurinn 60+ fer reyndar sístækkandi og telur nú um 25% íbúa sveitarfélagsins. Að sögn Erlu Bjargar Kristjánsdóttur, félagsmálastjóra Borgarbyggðar, var þverpólitísk samstaða innan sveitarstjórnar um að takast verkefnið á hendur.