
Listaverkið Veðurhorfur í Grundarfirði er eftir Sólrúnu Halldórsdóttur. Í Grundarfirði voru nýverið fimm störf við stjórnsýsluna auglýst. Ljósm. gj
Atvinna næg á Vesturlandi
Grundarfjarðarbær auglýsti nýverið í Skessuhorni fimm störf hjá sveitarfélaginu. Er þar um að ræða starf skipulagsfulltrúa, byggingafulltrúa, leikskólakennara og þjónustufulltrúa skipulags- og byggingamála og stöðu forstöðumanns bókasafns og menningarmála. Þess má einnig geta að á Facebooksíðu Borgarbyggðar kemur fram að sveitarfélagið hafi auglýst allnokkur störf til umsóknar. Má þar nefna starf aðstoðarmatráðs og leikskólakennara í leikskólanum Uglukletti og starf upplýsingafulltrúa. Einnig stöðu leikskólakennara í leikskólanum Klettaborg og frístundaleiðbeinenda í hlutastarf og í Félagsmiðstöðina Óðal í Borgarnesi. Loks auglýsir Skessuhorn eftir blaðamanni til starfa.