Fréttir

true

Umhverfisstofnun opnar starfsstöð á Hvanneyri

Umhverfisstofnun hyggst á næstunni opna nýja starfsstöð á Hvanneyri, en fyrir eru starfsstöðvar hennar á Akureyri, Egilsstöðum, Hellu, Ísafirði, Mývatnssveit, Patreksfirði, á Snæfellsnesi og í Reykjavík auk þess sem stofnunin nýtir nú aðstöðu sem ríkið hefur á leigu á Selfossi. Að sögn Sigrúnar Ágústsdóttur forstjóra Umhverfisstofnunar eru sum störf innan hennar staðbundin og má þar…Lesa meira

true

Jólin kvödd í Ólafsvík

Jólin voru kvödd í Ólafsvík á laugardagskvöldið með þrettándabrennu og flugeldasýningu. Áður höfðu börn klætt sig upp sem allskyns kynjaverur og gengu út aðalgötuna út að Klifi þar sem jólin voru kvödd og að sjálfsögðu voru álfakóngur og álfadrottning mætt. Strax eftir að brennu og flugeldasýningu lauk fóru börn í hús að sníkja nammi í…Lesa meira

true

Þrettándinn í Grundarfirði

Jólin voru kvödd í Grundarfirði eins og annarsstaðar síðasta laugardag. Þá var gengin stutt blysför frá Dvalarheimilinu Fellaskjóli niður á íþróttasvæði þar sem kveikt var í brennu, dansað og sungið. Björgunarsveitin Klakkur stóð svo fyrir glæsilegri flugeldasýningu gestum til mikillar gleði.Lesa meira

true

Útskýra álitamál varðandi stofnframlag til nemendagarða á Hvanneyri

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar síðastliðinn fimmtudag var lögð fram uppfærð beiðni um stofnframlag frá Nemendagörðum Búvísindadeildar vegna uppbyggingar nemendagarða við LBHÍ á Hvanneyri ásamt endurreiknuðu stofnverði. Byggðarráð hafði um miðjan nóvember afgreitt sambærilegt erindi með þeim hætti að framlag væri ekki innan fjárfestingaráætlunar 2024 og að frekara samtal þyrfti að fara fram. Ein ástæða þess…Lesa meira

true

Fjölmenni á þrettándabrennu og flugeldasýningu á Akranesi

Jólin voru kvödd með hefðbundnu sniði á Akranesi í gær, að kvöldi þrettándans. Ungmenni gengu blysför frá Þorpinu við Þjóðbraut og þegar hersingin; tröll, jólasveinar og aðrar verur komu á Þyrlupallinn við Jarðarsbakka var kveiktur varðeldur, sungið og dansað í kringum eldinn. Mjög góð mæting var á svæðið, en flughált þannig að fólk þurfti að…Lesa meira

true

Sveit Guðmundar Vesturlandsmeistari í bridds

Vesturlandsmótið í sveitakeppni var spilað í gær í sal eldri borgara við Dalbraut 4 á Akranesi. Ágæt þátttaka var á mótinu, en 16 sveitir tóku þátt. Má geta þess að það voru helmingi fleiri sveitir en áttust við á Suðurlandsmótinu sem spilað var á sama tíma. Aðstaða til spilamennsku er sérlega góð í þessum nýlega…Lesa meira

true

Nýtt hættumatskort gefið út fyrir Grindavík og nágrenni

Nýtt hættumat hefur verið gefið út af Veðurstofu Íslands. Kortið endurspeglar hættur á Grindavík – Svartsengi svæðinu eins og þær eru metnar föstudaginn 5. janúar. Hættumatið byggir á nýjustu gögnum, þar á meðal jarðskjálfta- og aflögunargögnum, auk líkanreikninga. Einnig eru metnar líkur á eldgosavá í öllum sex svæðunum sem skilgreind eru á hættumatskortinu. Aðalbreytingin er…Lesa meira

true

Einar Margeir Íþróttamaður Akraness

Í kvöld var tilkynnt í beinni útsendingu ÍATV frá Garðavöllum um kjör á Íþróttamanni Akraness fyrir árið 2023. Það var sundmaðurinn Einar Margeir Ágústsson sem hlaut titilinn og er það í fyrsta skipti sem hann hlýtur þessa nafnbót. Í öðru sæti var kraftlyftingakonan Kristín Þórhallsdóttir sem hafði borið sigur úr býtum síðustu þrjú ár og…Lesa meira

true

Bjarki Íþróttamanneskja Borgarfjarðar 2023

Í dag var tilkynnt í Hjálmakletti í Borgarnesi við hátíðlega athöfn hver hefði verið valin Íþróttamanneskja Borgarfjarðar fyrir árið 2023. Það var kylfingurinn Bjarki Pétursson sem hreppti titilinn að þessu sinni. Er þetta í sjöunda sinn sem hann hreppir þennan titil en Bjarki var fyrst kjörinn Íþróttamaður Borgarfjarðar árið 2008. Í fimmta sæti var Guðrún…Lesa meira

true

Sigur hjá ÍA en tap hjá Skallagrími og Snæfelli í körfunni

Ellefta umferðin fór fram í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og voru Vesturlandsliðin öll að spila. Skagamenn gerðu góða ferð á Selfoss og unnu frekar öruggan sigur, lokatölur 69:79 fyrir ÍA. Skagamenn voru miklu sterkari í fyrri hálfleik og höfðu mikla yfirburði, leiddu með átta stigum eftir fyrsta leikhluta, 12:20, og voru komnir…Lesa meira