
Fjölmenni á þrettándabrennu og flugeldasýningu á Akranesi
Jólin voru kvödd með hefðbundnu sniði á Akranesi í gær, að kvöldi þrettándans. Ungmenni gengu blysför frá Þorpinu við Þjóðbraut og þegar hersingin; tröll, jólasveinar og aðrar verur komu á Þyrlupallinn við Jarðarsbakka var kveiktur varðeldur, sungið og dansað í kringum eldinn. Mjög góð mæting var á svæðið, en flughált þannig að fólk þurfti að fara með gát. Í kjölfar brennunnar stóð Björgunarfélag Akraness fyrir glæsilegri flugeldasýningu. Að athöfninni lokinni var lýst kjöri íþróttmanns Akraness.