Sveit Guðmundar Ólafssonar varð Vesturlandsmeistari. Hér eru þeir Hallgrímur, Guðmundur og Karl, en Tryggvi og Eiríkur voru farnir þegar verðlaunaafhending fór fram. Ljósm. se

Sveit Guðmundar Vesturlandsmeistari í bridds

Vesturlandsmótið í sveitakeppni var spilað í gær í sal eldri borgara við Dalbraut 4 á Akranesi. Ágæt þátttaka var á mótinu, en 16 sveitir tóku þátt. Má geta þess að það voru helmingi fleiri sveitir en áttust við á Suðurlandsmótinu sem spilað var á sama tíma. Aðstaða til spilamennsku er sérlega góð í þessum nýlega sal FEBAN. Bæði er lýsing góð og ný spilaborð voru keypt á síðasta ári.

Sveit Guðmundar Vesturlandsmeistari í bridds - Skessuhorn