Aamondae Coleman átti góðan leik á móti Selfossi. Hér í leik gegn Ármanni fyrr í vetur. Ljósm. Jónas H. Ottósson

Sigur hjá ÍA en tap hjá Skallagrími og Snæfelli í körfunni

Ellefta umferðin fór fram í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og voru Vesturlandsliðin öll að spila. Skagamenn gerðu góða ferð á Selfoss og unnu frekar öruggan sigur, lokatölur 69:79 fyrir ÍA. Skagamenn voru miklu sterkari í fyrri hálfleik og höfðu mikla yfirburði, leiddu með átta stigum eftir fyrsta leikhluta, 12:20, og voru komnir með 17 stiga forystu þegar flautað var til hálfleiks, staðan 25:42 ÍA í hag. Nokkuð jafnt var á með liðunum í þriðja leikhluta og staðan var því lítið breytt þegar kom að þeim fjórða og síðasta, stigataflan sýndi 45:64 fyrir ÍA og gestirnir í ansi góðum málum. Heimamenn í Selfossi reyndu hvað þeir gátu til að koma sér inn í leikinn og náðu aðeins að saxa á forskotið í síðasta fjórðung en sigurinn var Skagamanna og alveg hreint sanngjarn.

Sigur hjá ÍA en tap hjá Skallagrími og Snæfelli í körfunni - Skessuhorn