
Andakíll er Ramsar-svæði, sem þýðir að öll nýting skal vera með sjálfbærum hætti. Ljósm. gj
Umhverfisstofnun opnar starfsstöð á Hvanneyri
Umhverfisstofnun hyggst á næstunni opna nýja starfsstöð á Hvanneyri, en fyrir eru starfsstöðvar hennar á Akureyri, Egilsstöðum, Hellu, Ísafirði, Mývatnssveit, Patreksfirði, á Snæfellsnesi og í Reykjavík auk þess sem stofnunin nýtir nú aðstöðu sem ríkið hefur á leigu á Selfossi.