Fréttir

true

Ellefta tap Snæfells kom á móti Grindavík

Grindavík og Snæfell mættust í Subway deild kvenna í körfuknattleik í gær og var leikurinn spilaður í Smáranum í Kópavogi sökum jarðhræringa á Reykjanesi. Eins og kannski við var að búast miðað við stöðu liðanna í deildinni var um hálfgerða einstefnu að ræða og tóku Grindavíkurkonur strax öll völd á vellinum. Þær komust í 9:0…Lesa meira

true

Varðskipið Þór átti viðkomu í Grundarfirði

Varðskipið Þór hefur að undanförnu verið við eftirlit á miðunum út af Vesturlandi og víðar. Á laugardaginn kom skipið til Grundarfjarðarhafnar þar sem það lagðist að bryggju. Fá skip voru á sjó á þessum tíma og því minni þörf á eftirliti. Líklega kærkomin hvíld fyrir áhöfnina frá ölduróti hafsins að binda landfestar og komast aðeins…Lesa meira

true

Snæfell tapaði fyrir Hrunamönnum í hörkuleik

Hrunamenn og Snæfell mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og var leikurinn spilaður á Flúðum. Fyrir leik voru bæði lið í neðri hlutanum, Snæfell með fjögur stig og Hrunamenn með tvö. Liðin skiptust á að hafa forystu í fyrsta leikhluta, Hrunamenn voru þó ívið sterkari og leiddu með fjórum stigum þegar honum…Lesa meira

true

Valdir í æfingahóp U20 landsliðsins í körfu

Fyrir helgi var tilkynnt að fjórir ungir Skagamenn hafa verið valdir til að taka þátt í æfingahópi U20 landsliðs Íslands í körfubolta fyrir Norðurlanda- og Evrópumót sem fara fram næsta sumar. Þetta eru þeir Aron Elvar Dagson, Júlíus Duranona, Styrmir Jónasson og Þórður Freyr Jónsson. Þeir verða allir hluti af úrtakshópi sem undirbýr sig fyrir…Lesa meira

true

Skallagrímur vann ÍA í jöfnum leik

Það var stuð og býsna góð stemning eins og oftast þegar lið Skallagríms og ÍA áttust við í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið. Yfir tvö hundruð manns mættu í Fjósið í Borgarnesi til að horfa á Vesturlandsslaginn og styðja við bakið á sínum mönnum. Þeir fengu eitthvað fyrir peninginn og snúðinn því leikurinn…Lesa meira

true

Aðventuhátíð Kvenfélagsins Gleym mér ei

Í gær á fyrsta sunnudegi í aðventu var árlegur aðventudagur Kvenfélagsins Gleym mér ei haldinn í Samkomuhúsi Grundarfjarðar. Þar kenndi margra grasa og gátu flestir fundið eitthvað við sitt hæfi. Nemendur í 9. bekk voru með kökusölu, strákarnir úr fótboltanum seldu saltfisk og svo var hægt að kaupa glæsilegt handverk á hinum ýmsu sölubásum. Árlegt…Lesa meira

true

Vaxandi líkur á að dagar skólahalds á Bifröst verði brátt taldir

Fyrr í haust auglýsti Háskólinn á Akureyri embætti rektors skólans laust til umsóknar. Ráðið verður í embættið til fimm ára frá 1. júlí 2024. Fimm sóttu um stöðuna. Athygli vekur að meðal umsækjenda er Margrét Jónsdóttir Njarðvík rektor Háskólans á Bifröst, en hún talar fyrir aukinni samvinnu eða sameiningu háskóla til að þeir megi eflast.…Lesa meira

true

Breki Blær hlaut styrk úr minningarsjóði Björns Rúnarssonar

Úthlutað hefur verið úr minningarsjóði Björns Rúnarssonar frá Þverfelli í Lundarreykjadal, en hann var fæddur 30. nóvember 1975 og lést 11. júní 1995. Megintilgangur sjóðsins er að styrkja bráðveik og langveik börn og ungmenni. Alla jafnan er úthlutað úr sjóðnum á fæðingardegi Björns. Frá stofnun sjóðsins hafa 27 einstaklingar hlotið styrk. Laugardaginn 30. nóvember síðastliðinn…Lesa meira

true

Bríet yfirtekur íbúðir og hvetur verktaka til að byggja í Dölum

Á 239. fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar var bókað að borist hefði tilboð frá Leigufélaginu Bríeti ehf. í eignir sveitarfélagsins við Stekkjarhvamm og Gunnarsbraut í Búðardal. Tilboðið er háð yfirtöku á eignum og skuldum í húseignunum og gegn eignarhlut í Leigufélaginu Bríeti ehf. Leigufélagið Bríet starfar með það að langtímamarkmiði að stuðla að nýsköpun og uppbyggingu íbúðarhúsnæðis…Lesa meira

true

Helgi hinna mörgu jólamarkaða – myndasyrpa frá Akranesi og Miðgarði

Óvenjulega margir og glæsilegir jólamarkaðir eru í gangi um þessa helgi á Vesturlandi. Meðal þeirra má nefna árlegan markað eða basar í félagsheimilinu Miðgarði þar sem safnað er fyrir endurbyggingu Innra-Hólmskirkju með því að selja m.a. bakkelsi, prjónavörur og sitthvað fleira. Fjölmenni var á markaðinum í gær þegar blaðamaður Skessuhorns leit við, en í Miðgarði…Lesa meira