Kirstín Benediktsdóttir og Jón Arnar Sverrisson voru með fallegar jólaskreytingar til sölu í gær í Landsbankahúsinu. Þær seldust hreinlega upp og verða því ekki í boði í dag. Ljósmyndir: mm

Helgi hinna mörgu jólamarkaða – myndasyrpa frá Akranesi og Miðgarði

Óvenjulega margir og glæsilegir jólamarkaðir eru í gangi um þessa helgi á Vesturlandi. Meðal þeirra má nefna árlegan markað eða basar í félagsheimilinu Miðgarði þar sem safnað er fyrir endurbyggingu Innra-Hólmskirkju með því að selja m.a. bakkelsi, prjónavörur og sitthvað fleira. Fjölmenni var á markaðinum í gær þegar blaðamaður Skessuhorns leit við, en í Miðgarði verður opinn aftur í dag, sunnudag. Í gamla Landsbankahúsinu á Akranesi standa Miðbæjarsamtökin og Akraneskaupstaður fyrir jólamarkaði um þessa helgi og næstu. Fjölmargir sýnendur fylltu tvær hæðir í húsinu. Opið er í dag frá klukkan 13-17 og svo aftur um næstu helgi. Þar var sömuleiðis margmenni í gær þegar blaðamaður Skessuhorns leit við, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Í félagsheimilinu Árbliki í Dölum stendur markaður yfir báða dagana um þessa helgi og er opið frá klukkan 13-17 í dag. Loks fór Jólagleði fram á Hvanneyri í gær, laugardag og var margt um manninn. Þar var sömuleiðis hægt að gera góð kaup í mat, jólatrjám, kaupa veitingar og njóta stemningarinnar.

Helgi hinna mörgu jólamarkaða - myndasyrpa frá Akranesi og Miðgarði - Skessuhorn