Fréttir

true

Skerða þarf raforku til víkjandi starfsemi

„Grípa þarf til takmörkunar á afhendingu víkjandi orku til fiskimjölsverksmiðja og fiskþurrkana, auk gagnavera sem stunda rafmyntagröft,“ segir í tilkynningu frá Landsvirkjun. Ástæða aðgerðanna, sem eru ótímabundnar, er samspil erfiðs vatnsbúskapar, hárrar nýtingar stórnotenda á langtímasamningum og aukinnar eftirspurnar heimila og smærri fyrirtækja, sem Landsvirkjun kappkostar að tryggja orku. Eftirspurn eftir raforku á Íslandi hefur…Lesa meira

true

Hróðmar nýr formaður golfklúbbsins Leynis

Aðalfundur Golfklúbbsins Leynis á Akanesi fyrir árið 2023 fór fram fimmtudaginn 23. nóvember síðastliðinn að Garðavöllum og var góð mæting á fundinn. Á fundinum var Hróðmar Halldórsson kjörinn formaður GL en hann tekur við af Pétri Ottesen sem ákvað að hætta í stjórn eftir fjögur farsæl ár.Lesa meira

true

Kvikmyndasafn Íslands – Nýtt efni á Ísland á filmu

Kvikmyndasafn Íslands hefur á undanförnu bætt verulegu magni, mörgum klukkustundum, af nýju kvikmyndaefni á vefinn islandafilmu.is. Um er að ræða myndefni frá árinu 1936 og fram yfir 1970. Kvikmyndirnar voru teknar af kvikmyndagerðarmanninum Kjartani Ó. Bjarnasyni (f. 1901 – d. 1981). Í myndefni Kjartans, sem finna má á islandafilmu.is, má finna fjölbreytt efni svo sem…Lesa meira

true

Akranes stefnir á að verða fyrsta íþróttasveitarfélagið

Fulltrúar Akraneskaupstaðar hafa undirritað viljayfirlýsingu þess efnis að Akranes verði fyrsta íþróttasveitarfélagið á landinu. Þetta kemur fram á vefsíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga. Með yfirlýsingunni lýsir Akranes yfir vilja til að halda áfram að byggja ofan á þær styrku stoðir sem fyrir eru í bæjarfélaginu og setja íþróttir barna- og ungmenna og eflingu þeirra ásamt afreksíþróttum…Lesa meira

true

Fjör í fyrsta snjónum

Það var mikið fjör í síðustu viku þegar fyrsti snjórinn lét sjá sig í Grundarfirði. Krakkarnir í Grunnskóla Grundarfjarðar voru duglegir að nýta snjóinn til að renna sér í skólabrekkunni á meðan tækifæri gafst til. Um helgina fór svo að rigna og allar brekkur auðar þegar krakkarnir mættu í skólann á mánudaginn. Það þarf því…Lesa meira

true

Skagamenn komnir í úrslit í Kviss

Fjórða þáttaröðin af spurningaþættinum Kviss sem sýndur er á Stöð 2 hófst í byrjun september. Þátturinn er í umsjón Björns Braga Arnarssonar þar sem þekktir Íslendingar keppa fyrir hönd íþróttafélaganna sem þeir styðja. Þótt liðin skiptist eftir íþróttafélögum er ekki um íþróttaþátt að ræða heldur eru spurningar úr öllum áttum. Fyrir hönd ÍA í vetur…Lesa meira

true

Tíu verkefni taka þátt í nýjum viðskiptahraðli

Síðastliðnar vikur hefur verið opið fyrir umsóknir í Vesturbrú sem er nýr viðskiptahraðall á Vesturlandi. Á vef Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, sem halda utan um verkefnið, segir að margar umsóknir hafi borist og ljóst sé að Vesturlandi iðar af lífi og sköpunarkrafti. „Á næstum vikum munu tíu teymi njóta leiðsagnar og samveru en hraðallinn er…Lesa meira

true

Landsbjörg fékk veltibílinn að gjöf

Síðastliðinn laugardag færði Brautin, bindindisfélag ökumanna, Slysavarnafélaginu Landsbjörg að gjöf veltibílinn sem Brautin hefur rekið frá árinu 1995. Frá þeim tíma hafa yfir 400 þúsund upplifað bílveltu í bílnum. Núverandi veltibíll er sá sjötti í röðinni, en veltibíllinn hefur verið endurnýjaður á um fimm ára fresti með góðum stuðningi Heklu og Volkswagen sem hafa reglulega…Lesa meira

true

Sunnanmenn sigursælir á Þorsteinsmóti

Þorsteinsmótið í bridds var haldið í gær í Logalandi í Borgarfirði. Mótið er eins og kunnugt er minningarmót um Þorstein Pétursson kennara frá Hömrum sem um árabil beitti sér fyrir framgangi briddsíþróttarinnar í héraði. Þorsteinsmót er að venju langstærsta briddsmót í landshlutanum og mögulega einnig utan höfuðborgarsvæðisins. Þátttaka á mótinu var góð, en 48 pör…Lesa meira

true

Langþráður sigur Snæfells, ÍA vann Ármann en Skallarnir töpuðu

Áttunda umferðin í 1. deild karla í körfuknattleik var spiluð í gærkvöldi þar sem Vesturlandsliðin Snæfell og ÍA unnu sigra á meðan Skallagrímur þurfti að sætta sig við tap. Snæfell úr Stykkishólmi batt enda á sex leikja taphrinu þegar þeir tóku á móti liði Selfoss og unnu leikinn með ellefu stiga mun, lokatölur 91:80 fyrir…Lesa meira