Akranes er frumkvöðlasveitarfélag í innleiðingu á lögum um farsæld barna en inn í þá vinnu tengir sveitarfélagið íþróttir og er viljayfirlýsingin ákveðið framhald á þeirri vinnu. Ljósm. úr safni Skessuhorns.

Akranes stefnir á að verða fyrsta íþróttasveitarfélagið

Fulltrúar Akraneskaupstaðar hafa undirritað viljayfirlýsingu þess efnis að Akranes verði fyrsta íþróttasveitarfélagið á landinu. Þetta kemur fram á vefsíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga. Með yfirlýsingunni lýsir Akranes yfir vilja til að halda áfram að byggja ofan á þær styrku stoðir sem fyrir eru í bæjarfélaginu og setja íþróttir barna- og ungmenna og eflingu þeirra ásamt afreksíþróttum á oddinn. Á undanförnum árum hefur sveitarfélagið byggt ný íþróttamannvirki og eru uppi áform um enn frekari uppbyggingu og endurbætur.

Akranes stefnir á að verða fyrsta íþróttasveitarfélagið - Skessuhorn