
Arnór og Sigrún Ósk voru hæstánægð eftir sigurinn. Skjámynd af Stöð 2.
Skagamenn komnir í úrslit í Kviss
Fjórða þáttaröðin af spurningaþættinum Kviss sem sýndur er á Stöð 2 hófst í byrjun september. Þátturinn er í umsjón Björns Braga Arnarssonar þar sem þekktir Íslendingar keppa fyrir hönd íþróttafélaganna sem þeir styðja. Þótt liðin skiptist eftir íþróttafélögum er ekki um íþróttaþátt að ræða heldur eru spurningar úr öllum áttum.