
Í liðinni viku voru fjögur umferðaróhöpp tilkynnt til lögreglu í umdæminu á Vesturlandi. Bifreiðar rákust saman við framúrakstur á Vesturlandsvegi nærri Laxárbakka. Smávægileg eymsli voru hjá ökumanni annarrar bifreiðarinnar. Einn ökumaður sofnaði við aksturinn með þeim afleiðingum að bifreið hans hafnaði utan vegar og valt á Vesturlandsvegi við Svignaskarð en ekki urðu slys á fólki.…Lesa meira








