Fréttir

true

Hrútaskráin komin út

Hrútaskrá sauðfjársæðingastöðvanna veturinn 2023-2024 er komin á vef RML, en prentaða útgáfan er sömuleiðis væntanleg (sjá einnig link hér). Að þessu sinni standa 48 úrvalshrútar til boða í komandi sæðingavertíð en útsending sæðis mun hefjast 1. desember nk. og standa til 20. desember. Af þessum 48 hrútum eru 27 hyrndir, 16 kollóttir, 2 feldfjárhrútar og…Lesa meira

true

Talsverður samdráttur í útflutningi sjávarafurða

Útflutningsverðmæti sjávarafurða nam 26,9 milljörðum króna í október samkvæmt fyrstu bráðabirgðatölum sem Hagstofan birti nýlega. Það er tæplega 14% samdráttur miðað við október í fyrra. Gengi krónunnar var að jafnaði rétt rúmlega 1% lægra nú í október en í sama mánuð í fyrra, miðað við gengisvísitölu Seðlabankans, og er samdrátturinn því aðeins meiri í erlendri…Lesa meira

true

Orka sem þú sérð, finnur og heyrir

Í Gestastofu Snæfellsness að Breiðabliki lauk í gær ársfundi fulltrúaráðs Svæðisgarðs Snæfellsness. Að sögn Ragnhildar Sigurðardóttur, framkvæmdastjóra svæðisgarðsins, var mikill samhugur og kraftur í fundarmönnum. Á meðfylgjandi mynd klæðast þeir allir Snæfellsness bolum og mætti segja að slagorð á þeim eigi einkar vel við hópinn: „Orka sem þú sérð, finnur og heyrir – Áfram Snæfellsnes!“Lesa meira

true

Gluggahöllin í Borgarnesi sérhæfir sig í gluggum og hurðum

Gluggahöllin er fyrirtæki sem upphaflega var stofnað árið 2012 samkvæmt kennitölu, en stofnárið er í raun 2020 þar sem í upphafi var ákveðið að kaupa eldra félag og nafnabreyta því. Fyrirtækið flutti starfsemi sína í Borgarnes fyrir nokkrum mánuðum. Hjónin Júlíus Árni Rafnsson og Helle Larsen eiga og reka fyrirtækið sem er til húsa í…Lesa meira

true

Húsnæðismarkaður heldur ekki í við fólksfjölgun

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi stóðu fyrir opnum fundi í gær, þriðjudag, þar sem farið var yfir atvinnuuppbyggingu og þróun íbúðamarkaðar í landshlutanum. Á fundinum kom fram að áætlað sé að byggja um 20.000 íbúðir á landsvísu á næstu fimm árum. Af þeirri tölu er áætlaður hluti Vesturlands 906 íbúðir. Lítil hreyfing hefur orðið á íbúðamarkaði…Lesa meira

true

Breyting á reglugerð um sjókvíaeldi

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur lagt fram í samráðsgátt stjórnvalda drög að breytingum á reglugerð um fiskeldi. Breytingarnar eru gerðar að höfðu samráði við Matvælastofnun og Hafrannsóknastofnun og leggja m.a. þá skyldu á herðar framleiðenda að tryggja að lax verði ekki kynþroska á eldistíma. Sett verði nánari tæknileg skilyrði um notkun ljósastýringar en lýsing er notuð…Lesa meira

true

App með aukaæfingum fyrir ungt knattspyrnufólk

Skagamaðurinn Atli Albertsson byrjaði með vefsíðuna betri.is í vor þar sem hægt er að gerast áskrifandi að appi sem inniheldur aukaæfingar fyrir unga og metnaðarfulla knattspyrnuiðkendur. Síðan var sett í loftið til þess að hjálpa ungu knattspyrnufólki að komast lengra og verða betra. Blaðamaður Skessuhorns heyrði í Atla til að fræðast meira um þetta verkefni…Lesa meira

true

Gefur út bók um Fornahvamm

Út er komin bókin Fornihvammur í Norðurárdal. Í henni tekur María Björg Gunnarsdóttir saman ýmsan fróðleik um bæinn Fornahvamm sem er fremsti bær í Norðurárdal, uppi undir Holtavörðuheiði. Vegna staðsetningar sinnar var Fornihvammur tengdur samgöngusögu Íslendinga því oft á tíðum þurftu ferðalangar um heiðina að leita þar skjóls á för sinni í ýmsum veðrum yfir…Lesa meira

true

Árgangamót ÍA fór fram í Akraneshöll

Það var ágætis stemning á Árgangamóti ÍA sem fram fór á laugardaginn í Akraneshöllinni. Mótið hefur fest sig í sessi sem vinsæll viðburður hjá knattspyrnumönnum sem eru flestir komnir af léttasta skeiði og tilþrifin eftir því. Tólf lið voru skráð karla megin og fjögur lið hjá konunum. Mikil barátta var um bikarinn í deildunum þremur…Lesa meira

true

Nýtt útisvið í Garðalundi

Fyrir helgina var lokið við uppsetningu á útisviði í skógræktinni á Akranesi. Að sögn Jóns Arnars Sverrissonar garðyrkjustjóra Akraneskaupstaðar tók verkið um tvær vikur í framkvæmd. „Þetta er aðallega hugsað sem útikennslustofa fyrir grunnskólanemendur en auðvitað er hægt að halda leiksýningar, tónleika og annað slíkt þarna. Þetta var ein af þeim fimm hugmyndum sem komu…Lesa meira