Fréttir

true

Lengja á næsta ári opnunartíma á Jaðarsbökkum

Á fundi skóla- og frístundaráðs Akraneskaupstaðar síðasta miðvikudag kynnti Daníel Sigurðsson Glad forstöðumaður íþróttamála- og íþróttamannvirkja tillögur að breytingum á opnunartíma íþróttamiðstöðvarinnar á Jaðarsbökkum fyrir árið 2024. Á barnaþingi 2022 kom fram skýr vilji barna- og ungmenna á Akranesi til að lengja opnunartíma sundlaugarinnar á Jaðarsbökkum á kvöldin, bæði á virkum dögum og um helgar.…Lesa meira

true

Erna Björt skrifar undir hjá ÍA

Erna Björt Elíasdóttir, sem er fædd árið 2002, hefur skrifað undir samning við Knattspyrnufélag ÍA sem gildir út leiktíðina 2025. Ebba, eins og hún er yfirleitt kölluð, kemur upp úr yngri flokka starfi ÍA og spilaði sinn fyrsta leik í meistaraflokki árið 2019. Samtals hefur hún spilað 51 deildarleik og skorað 16 mörk í þeim…Lesa meira

true

Breiðafjarðarferjan Baldur til sýnis í Stykkishólmi og Brjánslæk

Formleg móttaka ferjunnar Baldurs verður haldin í Stykkishólmi föstudaginn 17. nóvember klukkan 15:00 til 17:00. Þá gefst íbúum og öðrum áhugasömum tækifæri til að þiggja kaffi og kökur um borð í skipinu og skoða farþegarými þess. Íbúar norðan megin Breiðafjarðar fá tækifæri til að skoða ferjuna á Brjánslæk sunnudaginn 19. nóvember milli klukkan 17:00 og…Lesa meira

true

Nóg um að vera á Rökkurdögum

Þessa dagana fara Rökkurdagar fram í Grundarfirði og er mikið um viðburði og geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi. Í lok október var kertaljósastund í kirkjugarðinum, listsýning, spilakvöld og þann 2. nóvember var rithöfundakvöld á Græna Kompaníinu þar sem Eva Björg Ægisdóttir var með upplestur og ræddi við gesti. Krakkarnir á unglingastigi voru með…Lesa meira

true

Miklar fjárfestingar framundan í Borgarbyggð

Drög að fjárhagsáætlun Borgarbyggðar fyrir 2024-2027 var kynnt á sveitarstjórnarfundi á fimmtudaginn í liðinni viku, en umfangsmiklar framkvæmdir eru fyrirhugaðar sem hækka skuldsetningu sveitarfélagsins úr 1,8 milljarði króna í 4,7 milljarða. Í áætlun kemur fram að mestum fjármunum verður ráðstafað í stækkun á íþróttahúsi í Borgarnesi eða um 1,4 milljarði króna. Þar næst uppbygging á…Lesa meira

true

Ljósi varpað á veikleika fámennra sveitarfélaga

„Ekkert af tíu fámennustu sveitarfélögum á landinu sér um velferðarþjónustu við íbúa upp á eigin spýtur. Aðeins þrjú þeirra reka sjálf grunn- og leikskóla. Því er mun algengara að viðkomandi sveitarstjórn hafi samið við sveitarstjórn annars sveitarfélags um veitingu þjónustunnar eða tekið sig saman með öðrum sveitarstjórnum um veitingu hennar í gegnum byggðasamlag. Þetta kemur…Lesa meira

true

Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa verður á sunnudaginn

Árlegur alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa verður haldinn sunnudaginn 19. nóvember. Í ár verður sérstök áhersla lögð á fyrstu viðbrögð á slysstað og neyðarhjálp. Að minningardeginum standa Samgöngustofa, innviðaráðuneytið, Sjálfsbjörg, Landsbjörg, Neyðarlínan, Lögreglan og Vegagerðin. Minningarathafnir verða haldnar hringinn í kringum landið af þessu tilefni, þar á meðal við þyrlupall bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi kl.…Lesa meira

true

Fyrirhuga að byggja upp ferðaþjónustu við Skjöld

Í nýlegri fundargerð dreifbýlisráðs Sveitarfélagsins Stykkishólms kemur fram að sótt hefur verið um heimild til að vinna nýtt deiliskipulag við félagsheimilið Skjöld til að gera ráð fyrir ferðatengdri þjónustu á svæðinu. ,,Landeigandi Skjaldar stefnir á uppbyggingu ferðaþjónustu á hluta af landi sínu u.þ.b. 3 hektara svæði norðan við veginn upp að Skildi. Í fyrsta áfanga…Lesa meira

true

Framkvæmdir standa yfir á Brákarhlíð

Á Dvalar – og hjúkrunarheimilinu Brákarhlíð í Borgarnesi standa nú yfir framkvæmdir en verið er að bæta við tveimur nýjum hjúkrunarrýmum sem stefnt er á að taka í notkun um næstu mánaðamót. Nýju herbergin eru á 2. og 3. hæð heimilisins en fyrir breytinguna voru rýmin nýtt sem setustofur. Guðjón Fr. Jónsson hefur yfirumsjón með…Lesa meira

true

Tekur við kefli formanns Landsbjargar næstu vikurnar

Starfandi formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar næstu vikurnar verður Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir. Hún er í Björgunarsveitinni Gerpi í Neskaupsstað og Ársæli í Reykjavík. Borghildur hefur setið í stjórn Slysavarnafélagsins Landsbjargar frá árinu 2019 og sem varaformaður síðastliðin þrjú ár. „Í ljósi aðstæðna síðustu daga er sú ákvörðun Otta Rafns Sigmarssonar að stíga tímabundið til hliðar sem formaður,…Lesa meira