
Ljósi varpað á veikleika fámennra sveitarfélaga
„Ekkert af tíu fámennustu sveitarfélögum á landinu sér um velferðarþjónustu við íbúa upp á eigin spýtur. Aðeins þrjú þeirra reka sjálf grunn- og leikskóla. Því er mun algengara að viðkomandi sveitarstjórn hafi samið við sveitarstjórn annars sveitarfélags um veitingu þjónustunnar eða tekið sig saman með öðrum sveitarstjórnum um veitingu hennar í gegnum byggðasamlag. Þetta kemur fram í umsögnum innviðaráðuneytisins um álit sveitarfélaga með undir 250 íbúa. Tvö þessara sveitarfélaga er á Vesturlandi, þ.e. Eyja- og Miklaholtshreppur og Skorradalshreppur.