
Fimmtudaginn 9. nóvember voru Karlakórinn Kári og kirkjukór Grundarfjarðarkirkju með opna æfingu í Samkomuhúsi Grundarfjarðar og var vel mætt og tekið hressilega undir. Ljósmyndir: tfk
Nóg um að vera á Rökkurdögum
Þessa dagana fara Rökkurdagar fram í Grundarfirði og er mikið um viðburði og geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi. Í lok október var kertaljósastund í kirkjugarðinum, listsýning, spilakvöld og þann 2. nóvember var rithöfundakvöld á Græna Kompaníinu þar sem Eva Björg Ægisdóttir var með upplestur og ræddi við gesti. Krakkarnir á unglingastigi voru með Rökkurdagabingó svo eitthvað sé nefnt. Allt fór þetta vel fram og góðar viðtökur á öllum viðburðum.