
Nýr Baldur. Ljósm. Vegagerðin.
Breiðafjarðarferjan Baldur til sýnis í Stykkishólmi og Brjánslæk
Formleg móttaka ferjunnar Baldurs verður haldin í Stykkishólmi föstudaginn 17. nóvember klukkan 15:00 til 17:00. Þá gefst íbúum og öðrum áhugasömum tækifæri til að þiggja kaffi og kökur um borð í skipinu og skoða farþegarými þess. Íbúar norðan megin Breiðafjarðar fá tækifæri til að skoða ferjuna á Brjánslæk sunnudaginn 19. nóvember milli klukkan 17:00 og 18:00. Vegagerðin hefur gert samning við Sæferðir um rekstur Breiðafjarðarferjunnar Baldurs.