
Ráðhús Borgarbyggðar. Ljósm. gj
Miklar fjárfestingar framundan í Borgarbyggð
Drög að fjárhagsáætlun Borgarbyggðar fyrir 2024-2027 var kynnt á sveitarstjórnarfundi á fimmtudaginn í liðinni viku, en umfangsmiklar framkvæmdir eru fyrirhugaðar sem hækka skuldsetningu sveitarfélagsins úr 1,8 milljarði króna í 4,7 milljarða. Í áætlun kemur fram að mestum fjármunum verður ráðstafað í stækkun á íþróttahúsi í Borgarnesi eða um 1,4 milljarði króna. Þar næst uppbygging á skólahúsi Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum sem varið verður 1,2 milljarði í ásamt því að reisa fjölnota íþróttahús/knatthús í Borgarnesi fyrir 1,2 milljarða. Einnig er áætlað að stækka leikskólann Ugluklett og er áætlaður kostnaður við verkið 750 milljónir krónur.