
Atli Albertsson er með vefsíðuna betri.is. Ljósm. aðsend
App með aukaæfingum fyrir ungt knattspyrnufólk
Skagamaðurinn Atli Albertsson byrjaði með vefsíðuna betri.is í vor þar sem hægt er að gerast áskrifandi að appi sem inniheldur aukaæfingar fyrir unga og metnaðarfulla knattspyrnuiðkendur. Síðan var sett í loftið til þess að hjálpa ungu knattspyrnufólki að komast lengra og verða betra. Blaðamaður Skessuhorns heyrði í Atla til að fræðast meira um þetta verkefni og segir hann að þetta séu hugmyndir að æfingum fyrir krakka sem vilja gera eitthvað aukalega og bæta sig líkamlega og knattspyrnulega.