Fréttir

true

Nýtt dvalarheimili var formlega vígt í Stykkishólmi – Myndir frá opnun

Nýtt dvalar- og hjúkrunarheimili var formlega vígt í Stykkishólmi í síðustu viku en heimilið er staðsett í núverandi byggingu Heilbrigðisstofnunar Versturlands, í eldri hluta St. Franciskusspítalans. Heilbrigðisráðuneytið og Stykkishólmsbær stóðu að uppbyggingunni en Skipavík sá um framkvæmdir, sem staðið hafa yfir síðan í júlí 2021. Hjúkrunarheimilið er á annarri og þriðju hæð hússins og samanstendur…Lesa meira

true

Nemendur á miðstigi grunnskólans gera góðverk

Hluti nemenda í Grunnskóla Stykkishólms á miðstigi, þ.e. 5.-7. bekkur, hafa valið sér áfanga sem hefur það að markmiði að vinna góðverk fyrir samborgara sína. Þessi föngulegi hópur klæðir sig vel upp og heldur út hvernig sem viðrar alla mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 8:10 til 9:30 næstu tvær vikurnar. Hópurinn hefur það markmið…Lesa meira

true

Útgáfuhóf Gunnars Helgasonar í Pennanum

Rithöfundurinn Gunnar Helgason var í heimsókn í Pennanum Eymundsson á Akranesi á föstudaginn þar sem hann var að kynna nýjustu barnabók sína, Bannað að drepa, sem er framhald metsölubókanna Bannað að eyðileggja og Bannað að ljúga. Bókin er sú þriðja og síðasta í seríunni um Alexander Daníel Hermann Dawidsson og fjölskyldu hans. Bókin er myndskreytt…Lesa meira

true

Lauga færir sakamálaleikrit á fjalirnar

Leikfélagið Lauga frumsýnir í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík 17. nóvember nk. leikritið Bréf frá Önnu. Er þetta önnur sýningin sem leikfélagið setur upp en það var stofnað á síðasta ári. Að þessu sinni fór félagið í allt aðra átt við val á verki til sýningar, en fyrsta sýning félagsins var farsinn Sex í sama rúmi…Lesa meira

true

Minningarsýning opnuð í Safnahúsi

Síðastliðinn laugardag var opnuð ný sýning í Hallsteinssal Safnahúss Borgarfjarðar í Borgarnesi. Þar eru til sýnis verk eftir Stefán Geir Karlsson – In memoriam. Sýndir eru skúlptúrar byggðir á sögu Egils Skallagrímssonar sem Stefán Geir skapaði skömmu áður en hann féll frá. Auk þess málverk frá því hann lét draum sinn rætast og stundaði myndlistarnám…Lesa meira

true

Hittast í Karlakaffi í Vinaminni

Á fyrsta miðvikudegi í hverjum mánuði klukkan 13:30 kemur hópur karla saman í safnaðarheimilinu Vinaminni á Akranesi. Að jafnaði er fenginn gestur til að ræða við hópinn um starf sitt, áhugamál eða lífsferil og svara síðan fyrirspurnum. Á eftir eru svo kaffiveitingar og áframhaldandi spjall. Það er Ólöf Margrét Snorradóttir prestur í Garða- og Saurbæjarprestakalli…Lesa meira

true

Sigurmyndin í ljósmyndasamkeppni Símenntunar

Þær Tanja Ósk Bjarnadóttir og Þórunn Birna Guðmundsdóttir báru sigur úr býtum í ljósmyndasamkeppni Símenntunar sem haldin var í sumar. Þema keppninnar var „Fjölmenning“ og bárust margar skemmtilegar myndir. Dómnefndin sem skipuð var af starfsfólki Símenntunar var sammála um að mynd þeirra Þórunnar og Tönju „Lífið í lit“ sýndi sannarlega fjölmenningu og fjölbreytni en hún…Lesa meira

true

Silfur á Skagann á Íslandsmóti í tvímenningi í keilu

Helgina 4. og 5. nóvember fór fram Íslandsmót í tvímenningi í keilu í Egilshöll. Íslandsmótið var fremur erfitt þar sem langur olíuburður er á annarri brautinni en stuttur á hinni og reynir því á kænsku og heppni keppanda. ÍA átti fjögur pör af 17 á mótinu. Forkeppni og milliriðill fóru fram á laugardeginum og komust…Lesa meira

true

Markaður Félagsstarfs Akraneskaupstaðar haldinn – Myndasyrpa

Síðasta föstudag var haldinn markaður á Dalbraut 4 á Akranesi þar sem mikið úrval var til sölu af fallegu handverki. Þá var einnig boðið upp á vöfflur og heitt kaffi var á könnunni. Kolbrún Ingvarsdóttir ljósmyndari Skessuhorns var á ferðinni og tók nokkrar myndir á markaðnum af gestum og gangandi.Lesa meira

true

Hefja í kvöld aðaltvímenning BB

Í kvöld klukkan 20 hefst aðaltvímenningur Bridgefélags Borgarfjarðar. Um er að ræða fjögur stök kvöld þar sem árangur þriggja bestu telur til úrslita. Spilað er í Logalandi í Reykholtsdal og eru allir velkomnir. Á meðfylgjandi mynd eru sigurvegarar í mótinu fyrir ári síðan.Lesa meira