Fréttir

true

Flýtum vinnslu blaðs vegna mögulegra áhrifa kvennaverkfalls

Fjölmörg samtök kvenna og launafólks á vinnumarkaði blása þriðjudaginn 24. október til kvennaverkfalls. Framkvæmd og útfærsla verkfallsins er lögð í hendur hvers og eins starfsmanns. Búist er við að áhrifa verkfallsins gæti víðsvegar í samfélaginu enda konur og kvár um helmingur fólks á vinnumarkaði. Vegna mögulegra áhrifa verkfallsins verður vinnslu Skessuhorns í þessari viku flýtt…Lesa meira

true

Krókaleiðir lífsins

Rætt við Margréti Birnu Kolbrúnardóttur á Snæfellsnesi sem framleiðir vöggusett til útsaums Hvað þarf til að kona taki sig upp af heimaslóðum og komi sér fyrir í fjarlægri sveit – og er hún í raun svo fjarlæg? Stundum kemur lífið fólki á óvart og leiðir það á nýjar slóðir sem þó reynast gamlar. Blaðamaður Skessuhorns…Lesa meira

true

Bleiki dagurinn er í dag

Árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins sem stendur í október nær hápunkti í dag, 20. október, á bleikum degi. Skessuhorn tekur undir hvatningu Krabbameinsfélagsins til landsmanna um að vera bleik þannig að Bleiki dagurinn í ár verði sá allra bleikasti hingað til.Lesa meira

true

Eyjólfur Ingvi í stutt leyfi

Eyjólfur Ingvi Bjarnason oddviti sveitarfélagsins Dalabyggðar hefur óskað eftir leyfi frá störfum í sveitarstjórn í þrjá mánuði frá 1. nóvember nk. að telja. Erindi hans var tekið fyrir á fundi sveitarstjórnar 12. október sl. og leyfið veitt. Að sögn Eyjólfs Ingva er hann að fara í fæðingarorlof frá sveitarstjórn þar sem hann og kona hans…Lesa meira

true

Punkteraði á blaðamanni

Þau er fjölbreytt verkefnin sem blaðamenn Skessuhorns takast á við í störfum sínum. Meðal annars ljósmyndun á vettvangi. Nýverið var Guðrún Jónsdóttir að taka mynd af kirkjunni á hinu forna höfuðbóli og höfðingjasetri Kolbeinsstöðum í samnefndum hreppi á Snæfellsnesi. Alla jafnan væri ekki hægt að flokka það sem neitt sérstakt áhættustarf. En hvar hún stikaði…Lesa meira

true

Hollvinafélag Hallgrímskirkju stofnað í næstu viku

Á næsta ári verður þess minnst að 350 ár verða liðin síðan sálmaskáldið Hallgrímur Pétursson lést sextugur að aldri. Til stendur að minnast hans með ýmsum hætti á þessum tímamótum og eitt verkefnanna eru Hallgrímsdagar að hausti sem auglýstir var í Skessuhorni vikunnar og standa yfir 27. -29. október. Annað verkefni sem er í undirbúningi…Lesa meira

true

Heilbrigðiseftirlit verður fært frá sveitarfélögum til ríkisins

„Þörf er á gagngerum breytingum á fyrirkomulagi eftirlits með hollustuháttum og mengunarháttum og matvælaeftirliti,“ segir í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu og vísað til niðurstöðu starfshóps sem Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, skipaði í október 2022 í samráði við matvælaráðherra, til að leggja til nýtt fyrirkomulag að eftirliti með hollustuháttum og mengunarvörnum og matvælum. Niðurstaða…Lesa meira

true

Gul viðvörun vegna hvassviðris til kvölds

Í dag verður áfram suðaustan hvassviðri eða stormur á öllu sunnan- og suðvestanverðu landinu, 15-23 m/s og vindhviður staðbundið yfir 35 m/s. Gul viðvörun er í gildi fyrir Faxaflóa til klukkan 22 í kvöld. Vegagerðin varar við sterkum vindstrengjum t.d. við Hafnarfjall, í utanverðum Hvalfirði, á Kjalarnesi og norðanverðu Snæfellsnesi. Fólk er hvatt til að…Lesa meira

true

Opið hús síðdegis í Menntaskóla Borgarfjarðar

Í tilefni Lífsnámsviku, sem nú stendur yfir í Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi, býður skólinn öllum í heimsókn í dag, fimmtudaginn 19. október frá klukkan 16-17:30. „Í dag, á lokadegi vikunnar, munu nemendur kynna verkefni sín sem tengjast öll viðfangsefni vikunnar. Í Lífsnámsvikunni er kenndur áfanginn Mannréttindi og jafnrétti. Lögð er áhersla á að gera nemendur…Lesa meira

true

Ályktanir haustþings SSV um samgöngumál og fleira

Haustþing Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi var haldið í Reykholti í byrjun þessa mánaðar. Þar voru til afgreiðslu og samþykktar fjölmargar ályktanir. Fjölluðu þær um vegamál, almenningssamgöngur, hafnamál, flugvelli, fjarskiptamál og húsnæðismál. Tillögurnar eru eftirfarndi, en þeim fylgdi auk þess ítarleg greinargerð með rökstuðningi sem lesa má um á vef SSV. Tillögur þingsins voru efnislega eftirfarandi:…Lesa meira