
Flýtum vinnslu blaðs vegna mögulegra áhrifa kvennaverkfalls
Fjölmörg samtök kvenna og launafólks á vinnumarkaði blása þriðjudaginn 24. október til kvennaverkfalls. Framkvæmd og útfærsla verkfallsins er lögð í hendur hvers og eins starfsmanns. Búist er við að áhrifa verkfallsins gæti víðsvegar í samfélaginu enda konur og kvár um helmingur fólks á vinnumarkaði.
Vegna mögulegra áhrifa verkfallsins verður vinnslu Skessuhorns í þessari viku flýtt eins og kostur er. Eins og kunnugt er eru þriðjudagar lokavinnsludagar blaðs hverrar viku. Því vill ritstjórn biðla til fólks að senda efni til birtingar í næsta tölublaði sem fyrst á netfangið skessuhorn@skessuhorn.is Auglýsingapantanir þurfa sömuleiðis að berast í síðasta lagi fyrir hádegi mánudaginn 23. október á auglysingar@skessuhorn.is