
Punkteraði á blaðamanni
Þau er fjölbreytt verkefnin sem blaðamenn Skessuhorns takast á við í störfum sínum. Meðal annars ljósmyndun á vettvangi. Nýverið var Guðrún Jónsdóttir að taka mynd af kirkjunni á hinu forna höfuðbóli og höfðingjasetri Kolbeinsstöðum í samnefndum hreppi á Snæfellsnesi. Alla jafnan væri ekki hægt að flokka það sem neitt sérstakt áhættustarf. En hvar hún stikaði eftir grónum grundum til að ná réttu sjónarhorni á kirkjuna steig hún á nagla sem leyndist í sverðinum. Svo heppilega vildi til að naglinn fór ekki í fót blaðamanns heldur straukst við hann og stakkst í gegnum skóinn. Þurfti góða töng til að ná honum úr.